Hreinsunarátak

Plokk mynd SMH
Plokk mynd SMH

Allir staðnemar MTR sem staddir voru í skólanum í gær og nokkrir starfsmenn tóku sig til og
tíndu rusl í poka. Farið var vítt um Ólafsfjarðarbæ, nágrenni skólans og íþróttamannvirkja, í
kirkjugarðinn, á Flæðurnar og víðar. Af nógu mun hafa verið að taka og sáu bæjarstarfsmenn
um að koma ruslinu sem tínt var á viðeigandi stað. Þetta átak nemenda var í tilefni stóra
plokkdagsins sem var síðastliðinn laugardag. Eftir hreinsunina bauð skólinn nemum og
starfsmönnum upp á pitsur sem runnu ljúflega niður. Myndir