Hrafnavogar vígðir

Kristinn og Kristján opna salinn mynd GK
Kristinn og Kristján opna salinn mynd GK

Vígsla nýbyggingar við skólann var einkar ánægjuleg athöfn. Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra sagði í ávarpi sínu að Menntaskólinn á Tröllaskaga væri samfélaginu við utanverðan Eyjafjörð mjög mikilvægur. Frá upphafi hafi frumkvæði og sköpun einkennt skólastarfið, haft áhrif bæði nær og fjær og verið mörgum fyrirmynd. Góð útkoma skólans í könnuninni „stofnun ársins“ sýndi ánægju starfsfólks. Könnun ráðuneytis hefði sýnt veikleika í félagslífi nemenda og skort á mataraðstöðu fyrir þá og starfsmenn. Nýi salurinn myndi bæta úr þessu, bæði yrði þar félagsaðstaða nemenda og mötuneyti.  

Gunnar Ingi Birgisson, bæjarstjóri stýrði athöfninni. Steinunn María Sveinsdóttir, formaður bæjarráðs þakkaði öllum sem að framkvæmdinni komu en Lára Stefánsdóttir, skólameistari ræddi mikilvægi bættrar aðstöðu og gaf salnum nafnið Hrafnavogar. Kristján Þór og Kristinn G. Jóhannsson, listmálari klipptu svo á borða og opnuðu salinn formlega. MYNDIR