Heimsókn í Háskólann á Akureyri

Íslandsklukkan mynd GK
Íslandsklukkan mynd GK

Góður hópur nemenda úr MTR skrapp til Akureyrar í síðustu viku, ásamt náms- og starfsráðgjafa skólans. Tilefnið var HA-dagurinn þar sem Háskólinn á Akureyri býður öllum áhugasömum að kynna sér nám skólans og aðstöðu. Á þessum opna degi kynntu stúdentar HA gestum allar námsleiðir í grunnnámi og deildu reynslu sinni af náminu og félagslífinu. Starfsfólk var einnig á staðnum til skrafs og ráðagerða og gestir hafa möguleika á að kynna sér stoðþjónustu háskólans og húsnæðismöguleika á stúdentagörðunum.

Boðið var upp á skipulagðar gönguferðir um háskólasvæðið þar sem gestir gátu kynnt sér aðstöðu skólans. Litið var inn í kennslustofur, rannsóknastofu, líkamsræktarsal og aðstöðu stúdenta og gafst þannig tækifæri til að sjá allt það sem er í boði á háskólasvæðinu, bæði hvað varðar námið sem og lífið utan kennslustofunnar.

Nemendur frá öllum framhaldsskólunum á Norðurlandi mættu á þennan opna dag en svo vel vildi til að okkar nemendur voru fyrstir á svæðið og höfðu gott næði til að spjalla við háskólanemana sem sáu um kynningarnar. Þótti þeim mjög gott að hafa góðan tíma til að spjalla við fólk sem er í háskólanámi, spurðu margs og fengu að heyra hvernig námið og háskólalífið er í raun og veru frá fyrstu hendi. Leist nemendum okkar mjög vel á aðstöðuna og námið í HA og margir þeirra stefna þangað að loknu stúdentsprófi frá MTR.