Einn af alþjóðadögum Sameinuðu þjóðanna er Alþjóðlegur dagur hamingjunnar. Hefur hann verið haldinn hátíðlegur þann 20. mars frá árinu 2013 til að minna á að hamingjan sé almennur réttur og markmið allra jarðarbúa. Dagurinn er notaður til að stuðla að velsæld, gleði og jákvæðni með ýmsum samfélagslegum viðburðum sem einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir taka þátt í. Dagurinn fellur undir þriðja heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem snýst um heilsu og vellíðan.
Menntaskólinn á Tröllaskaga vinnu markvisst með heimsmarkmiðin og í tilefni dagsins voru nemendur hvattir til að mæta í skólann í klæðnaði sem þeim liði sérstaklega vel í. Auk þess var skorað á nemendur og starfsfólk að setja á sérstaka myndasíðu myndir af því sem veitti þeim hamingju.Var áhugavert að sjá hversu margar myndir sýndu útivist, hreyfingu og samveru en auk þess var kaffi og súkkulaði áberandi á kennaravængnum. Til að auka hamingju dagsins var boðið upp á súkkulaðikökur að loknum hádegisverði.Var ekki annað að sjá en hamingjustuðullinn hækkaði töluvert við það.