Hæfileikakeppni starfsbrauta

Nemendur á starfsbraut MTR gerðu góða ferð á hæfileikakeppni starfsbrauta framhaldsskólanna á Egilsstöðum. Framlag þeirra var myndband með laginu „I choose you“ eftir Andy Grammer. Í áfanganum skapandi tónlist lærðu nemendurnir að syngja lagði og spila það á gítar, bassa, hljómborð og trommur. Meðan á þessari vinnu stóð var tekið upp myndband.

Ferðin til Egilsstaða var í alla staði ánægjuleg. Stoppað var á Akrureyri og í Mývatnssveit á leiðinni austur. Ekkert sást til hreindýra á leiðinni og þótti sumum í hópnum það miður. Á Egilsstöðum röltu nemendur og starfsfólk um og skoðuðu bæinn í rjómablíðu. Keppnin fór fram að kvöldi og tóku sjö framhaldsskólar þátt í henni að þessu sinni. Eftir keppnina var diskó þar sem nemendur dönsuðu og skemmtu sér. Hópurinn var sammála um að ferðin hefði gengið vel og verið skemmtileg. Myndir  Myndband