Góðir gestir í miðannarviku

Hópmynd mynd GK
Hópmynd mynd GK

Það var mikið líf og fjör hjá okkur í skólanum í síðustu viku en þá var miðannarvika þegar skólastarf er brotið upp, nemendur stunda annað nám en venjulega og kennarar sinna námsmati. Að þessu sinni var vikan hluti af stærri áfanga staðnema og var tileinkuð lokasprettinum í Nordplus samstarfsverkefni með þremur skólum; einum eistneskum og tveimur finnskum. Verkefnið kallast “Bridging Minds & Cultures Through Stories” (Að tengja menningu og hug með sögum) og er markmiðið að nemendur kynnist menningu mismunandi landa og vinni með andlega heilsu í gegnum söguformið. Á síðustu tveimur önnum hafa þátttakendur komið saman í Finnlandi og Eistlandi og nú var komið að okkur að vera gestgjafar og skipuleggja dagskrá. Notuðu nemendur fyrri hluta annarinnar til skipulagningar og hafði hver og einn sitt hlutverk í undirbúningi og framkvæmd dagskrárinnar. Það sem eftir er annarinnar fer svo í mat á því hvernig til tókst.

Erlendu nemendurnir voru 18 talsins og þeim fylgdu hvorki fleiri né færri en 12 kennarar en hluti þeirra var hér í þeim tilgangi að fræðast um kennsluhætti í skólanum hjá okkur og fylgjast með kennslu. Nemendur voru í heimagistingu og þótti það spennandi og skemmtilegt því heimagisting býður upp á meiri samskipti og nánari tengsl við heimafólk. Þegar sá háttur er hafður á fá nemendur meiri innsýn í daglegt líf og menningu viðkomandi lands.

Dagskráin hófst á mánudagsmorgni með kynningu á skólanum okkar og svo tók við ýmiskonar hópefli til að hrista hópinn saman. Eftir hádegið var farið yfir dagskrá vikunnar og nemendum skipt upp í hópa fyrir verkefnavinnu næstu tvo daga. Þá fóru allir saman í sund í Ólafsfirði enda sundferðir mikilvægur hluti í okkar menningu. Á þriðjudag og miðvikudag voru ratleikir og ýmis konar fræðsla um sögu og menningu svæðisins og landsins. Nemendur fóru um í hópum og heimsóttu á Siglufirði Síldarminjasafn Íslands og Ljóðasetur Íslands og í Ólafsfirði Pálshús og menningarmiðstöðina Brimsali. Á fimmtudeginum var svo unnið úr þeim upplýsingum sem nemendur fengu á þeim stöðum sem þeir heimsóttu og á föstudagsmorgni voru kynningar frá hópunum um niðurstöður sínar úr verkefnavinnunni. Heimsókninni lauk með fjöri og leikjum í íþróttasalnum og svo spurningakeppni úr efni vikunnar.

Nemendur brölluðu einnig margt saman utan formlegrar dagskrár fóru í fjallgöngur og leiki á knattspyrnuvellinum í Ólafsfirði, horfðu saman á landsleik þar sem Eistland og Ísland mættust, skruppu í skógræktina á Sigló og grilluðu þar saman pylsur og skelltu sér í Skógarböðin á Akureyri. Tókust afar góð kynni með nemendum þessarra þriggja landa og mynduðust vinabönd sem án efa munu halda inn í framtíðina.

Bæði nemendur og kennarar lögðu mat sitt á þessa daga og miðað við þau svör sem hafa borist nú þegar ríkti mikil ánægja með dagskrá daganna og samveruna. Munum við greina nánar frá niðurstöðunum þegar þær liggja fyrir. Myndir