Góðir gestir frá Jótlandi

Brugðið á leik í snjónum. Ljósm. Lísebet Hauksdóttir.
Brugðið á leik í snjónum. Ljósm. Lísebet Hauksdóttir.

Tólf manna hópur frá Danmörku eru nú í tveggja daga heimsókn í skólanum. Þau skemmtu sér konunglega á snjóþotum og gönguskíðum í gær og veltu sér upp úr snjónum áður en þau stukku út í sundlaug.

Þetta eru nemendur í framhaldsskóla á Jótlandi, tíu nemendur og tveir kennarar. Þetta er Erasmus+ verkefni í skólanum og markmiðið er að kynnast lífi jafnaldra í öðru landi en einnig að styrkja tengslanetið en skólinn þeirra er með Erasmus vottun eins og MTR og hver veit nema við endurgjöldum heimsóknina síðar meir.

 

Gærdagurinn var sem fyrr segir helgaður útivist og leikjum í snjónum og sáu kennararnir Diljá Helgadóttir og Lísebet Hauksdóttir um það en fleiri úr hópi kennara og starfsfólks komu að heimsókninni m.a. með því að bjóða dönsku gestunum gistingu á heimilum sínum.

Dagurinn í dag einkenndist af listum og menningu. Krakkarnir unnu myndverk um jafnrétti og fordóma undir leiðsögn Karólínu Baldvinsdóttur listakennara og seinni partinn var förinni heitið á Ljóðasetur Íslands þar sem Þórarinn Hannesson ræður ríkjum en hann er einnig kennari skólans. Kvöldinu verja þau svo á Kaffi Klöru ásamt jafnöldrum sínum en á morgun leggja þau af stað heim á leið.

Dönsku krökkunum þótti mikið til um veðrið og snjóinn enda hefur snjóað nánast allan tímann sem þau dvöldu í Fjallabyggð. Það er mikill munur frá vesturströnd Jótlands þar sem þau búa þar sem kemur í mesta lagi þriggja sentímetra snjór sem bráðnar eftir tvo daga að þeirra sögn. Þá fannst þeim áhugavert að geta stundað nám án þess að mæta nokkurn tímann í skólann og fannst mjög afslöppuð stemning í skólanum. Þau nefndu einnig að lífið hjá þeim væri svo skipulagt, gagnstætt því sem þau hafa kynnst hjá krökkunum okkar. Dönsku gestirnir gista í heimahúsum á svæðinu og nefndu að þeim hefði þótt gaman að fá að kynnast íslensku fjölskyldulífi. Þannig að þau eru klárlega reynslunni ríkari eftir Íslandsferðina.

Smellið hér til að skoða myndir