Skólafundur mynd GK
Síðasta dag septembermánaðar var haldinn skólafundur hjá okkur í MTR. Skólafundir eru haldnir hvert skólaár og á þeim er fjallað um þætti sem tengjast námskrá skólans. Sjálfsmatsteymi skólans stýrir framkvæmd hans í samvinnu við nemendaráð. Skólafundir eru ein leið til að efla nemendalýðræði en þar eru rædd ýmis málefni sem koma bæði frá nemendum skólans sem starfsfólki. Á fundinum í gær var nemendum skipt upp í hópa og stýrði hópstjóri úr hópi nemenda umræðunni í hverjum hópi. Umræðuefnin að þessu sinni snérust m.a. um félagslíf nemenda, námsaðstöðu, notkun gervigreindar og námsmat.
Líflegar umræður sköpuðust um öll umræðuefnin og nemendur nýttu tækifærið til að koma sínum skoðunum á framfæri. Hópstjórar skráðu hugmyndir og niðurstöður hvers hóps og tekur sjálfsmatsteymið þær síðan til skoðunar og umræðu. Nýtast þær í umbótaáætlun skólans og til að bæta skólastarfið hjá okkur á ýmsan hátt. Nemendaráð tekur einnig þær hugmyndir sem bárust varðandi félagslífið til umfjöllunar svo það sé í sem mestum takti við vilja nemenda. Myndir