Fyrsti skóladagurinn á nýrri önn

MTR mynd GK
MTR mynd GK

Þá er skólastarfið hafið á ný eftir gott sumarfrí. Fyrsti nemendadagurinn var í gær og var ánægjulegt að sjá okkar unga og efnilega fólk flykkjast í skólann tilbúið að takast á við fyrstu verkefni annarinnar. Nýnemar, í hópi staðnema, eru fleiri en síðustu annir og mátti vel merkja blöndu af tilhlökkun og kvíða meðal þeirra sem eðlilegt er á fyrsta degi. Eldri nemendur gengu til sinna verka af yfirvegun og aðstoðuðu einnig nýnemana fyrstu skrefin. Flestir staðnemanna koma úr Fjallabyggð en einnig frá Dalvíkurbyggð og úr Eyjafjarðarsveit.

Líkt og síðustu annir eru meira og minna allir áfangar sem eru í boði fullsetnir. Skráðir nemendur eru á sjöunda hundrað, meirihluti þeirra fjarnemar vítt og breitt um landið sem og erlendis. Líkt og staðnemar hafa þeir fengið upplýsingar um hvernig þeir skrá sig inn í sína áfanga í kennslukerfi skólans og hafa hafist handa enda fyrstu skil verkefna nk. sunnudag.

Kennarar hafa verið iðnir að sækja sér endurmenntun í sumar og sinnt undirbúningi fyrir önnina síðustu vikur. Lokahnykkur þeirrar vinnu voru tveir sameiginlegir vinnudagar í upphafi vikunnar þar sem ýmis mál voru rædd og krufin.