Framhaldslíf sýningar Bergþórs

Bergþór Morthens
Bergþór Morthens

Frá því í haust hafa nokkur verk eftir Bergþór Morthens, myndlistarmann og kennara skólans, verið á sýningu í Listasafninu á Akureyri og vakið töluverða athygli. Sú sýning er nú yfirstaðin en fær framhaldslíf hjá okkur í Menntaskólanum á Tröllaskaga. Verkunum hefur verið haganlega fyrir komið í sal skólans og er öllum velkomið að kíkja við á opnunartíma til að sjá og upplifa þau sem og fleiri verk í eigu skólans eftir Bergþór. Opið er mánudaga til fimmtudaga frá 8 -16 og 8 -12 á föstudögum.

Um verkin á sýningunni á Listasafninu á Akureyri sagði í sýningarskrá:

Í verkum Bergþórs eru mörkin á milli málverks og skúlptúrs óljós, en efnin þau sömu, rétt eins og litirnir og meðferð þeirra. Myndheimurinn er lifandi og verkin flökta á milli myndrænnar túlkunar og hins óhlutlæga. Skilin á milli innra og ytra yfirborðs og þess sem liggur undir verða óljós, í gróteskum og brengluðum formum sem hylja, en afhjúpa á sama tíma. Óhóf og ofhlæði, þar sem ferlið við verkin endurspeglar öfgakennda efnishyggju samfélagsins: uppbygging og niðurrif, sköpun og eyðilegging. Verkin vísa í sögu, samtíma, dægurmenningu, listasögu, pólitík, hið undarlega og hið gróteska.

Bergþór Morthens (f. 1979) lauk námi við Myndlistaskólann á Akureyri 2004 og meistaranámi í myndlist við Valand háskólann í Gautaborg 2015. Verk hans hafa verið sýnd á Íslandi, í Svíþjóð, Danmörku, Grikklandi og Rúmeníu.