Úr safni mynd GK
Í gær fengum við góða heimsókn í skólann þegar tveir fulltrúar frá Grófinni geðrækt á Akureyri héldu fræðsluerindi fyrir nemendur. Grófin geðrækt er gjaldfrjálst úrræði fyrir einstaklinga 18 ára og eldri sem vilja bæta heilsuna með geðrækt og batavinnu gegnum hópastarf á jafningjagrundvelli. Markmiðið með þessu starfi er að auka þekkingu fólks í samfélaginu á geðheilsu, geðrækt og geðrænum vanda sem og að opna umræðuna um þessi málefni og draga úr fordómum gagnvart fólki sem glímir við geðræn veikindi.
Erindinu var skipt í tvo hluta þar sem fyrst var fjallað um um mikilvægi þess að hugsa vel um sína andlegu heilsu, útrýma skömminni sem margir upplifa vegna andlegra veikinda sinna með því að rjúfa þögnina í kringum málefnið og gera fólki ljóst að það má og á að leita sér hjálpar við andlegum veikindum. Að því loknu sagði annar fulltrúi samtakanna frá sinni persónulegu reynslu af veikindum og sínu bataferli.
Nemendum þótti erindið áhugavert og spurðu um eitt og annað, enda hefur dvínandi andleg heilsa ungmenna verið mjög í umræðunni undanfarin ár. Lýðheilsusjóður styrkir þessi erindi Grófarinnar og er það vel.