Foreldrafundur 30. ágúst 2017

Frá Ólafsfirði. Ljósmynd: Lára Stefánsdóttir
Frá Ólafsfirði. Ljósmynd: Lára Stefánsdóttir

Miðvikudaginn 30. ágúst 2017 kl. 17:00 verður haldinn foreldrafundur í Hrafnavogum í húsnæði Menntaskólans á Tröllaskaga. Þar gefst foreldrum tækifæri til að kynnast skólanum, koma með spurningar og ræða við kennara.