Fjörugur og sólríkur nýnemadagur

Nýnemadagur mynd GK
Nýnemadagur mynd GK

Í dag var nýnemadagur hjá okkur í MTR þar sem nýnemarnir okkar voru boðnir velkomnir í skólann. Líkt og venja er fyrir var boðið upp á dagskrá undir stjórn nemendafélagsins með það að markmiði að hrista allan nemendahópinn saman. Hófst hún með því að nemendum var skipt í hópa og kepptu þeir sín á milli í ratleik sem fór fram bæði innan skólans og utan. Þar þurfti að leysa ýmsar frumlegar þrautir og skila lausnum þeirra með myndrænum hætti þar sem allir í hópnum sáust vinna saman að lausninni.

Í hádeginu var boðið upp á pizzuhlaðborð og síðan hélt fjörið áfram með ýmiskonar boðhlaupum og leikjum. Var þar hart barist en drengilega hvort sem svolgra þurfti í sig hráum eggjum, gleypa fjölda sykurpúða, koma niður þeirri skemmtilegu blöndu sem kókosbollur og gosdrykkir eru, finna kennara í felum eða hlaupa um í björgunarbúningum.

Veðrið lék við mannskapinn og allir skemmtu sér vel meðan á fjörinu stóð. Að því loknu var tekið til óspilltra málanna við að sinna náminu á ný. Myndir