Vorsýning mynd GK
Vorsýning skólans opnaði laugardaginn 16. maí og verður opin á opnunartíma skólans fram að útskrift þann 23. maí. Á sýningunni má sjá fjölda glæsilegra verka sem nemendur hafa unnið á önninni í hinum ýmsu greinum. Aðsókn á opnunardegi hefur líklega aldrei verið betri og er hluti skýringarinnar sá að þann dag fóru einnig fram sveitarstjórnarkosningar og var Menntaskólinn á Tröllaskaga kjörstaðurinn í Ólafsfirði. Var gaman að sjá viðbrögð sýningargesta og upplifa þær líflegu umræður sem sköpuðust um verk nemenda og afrakstur annarinnar. Rafrænar sýningar verkefna eru einnig aðgengilegar á vef skólans. Þar má einnig sjá fjölmörg metnaðarfull dæmi um skapandi vinnu nemenda skólans. Myndir
Eru allir hvattir til að leggja leið sína í skólann þessa síðustu dag sem sýningin er opin og skoða glæsileg verk nemenda okkar.