Fjölbreyttur miðannaráfangi

Skera grænmeti mynd Ida Semey
Skera grænmeti mynd Ida Semey

Tíu starfsbrautarnemar kynnast í miðannarvikunni rekstri veitinga- og gistihúss. Það er Ida Semey, eigandi Kaffi Klöru og Anna Kristín dóttir hennar sem leiðbeina hópnum við margvísleg störf. Nemendahópurinn hefur meðal annars tekið þátt í velja rétti á matseðil, matreiða þá og framreiða. Lagaðir hafa verið spennandi spænskir réttir, þeytingur eða búst og margt fleira. Nemendurnir hafa líka afgreitt á veitingahúsinu og í mötuneyti skólans og þeir hafa þvegið upp og gengið frá eftir máltíðir, búið um rúm, ryksugað og skúrað. Myndir