Ólafsfjörður. Mynd: LS
Eins og áður hefur komið fram fáum við mikið af heimsóknum frá erlendum kennurum sem vilja kynna sér skólastarfið hjá okkur. Nokkrir hópar hafa komið á þessari önn og í vikunni fyrir páskafrí voru hér kennarar frá Spáni, Austurríki og Danmörku í gegnum Erasmus+ samstarf. Markmið þeirra var að kynnast kennsluháttum í skólanum og fá að fylgjast með kennslu. Að lokinni heimsókn var lögð könnun fyrir hópinn og niðurstöður hennar sýna að heimsóknin þótti afar vel heppnuð.
Gestirnir hrósuðu mjög móttöku, skipulagi og samstarfi við starfsfólk skólans og lýstu heimsókninni sem bæði faglegri og lærdómsríkri. Sérstaka athygli vakti sveigjanlegt skipulag náms, áhersla á sjálfstæði nemenda og öflug notkun stafrænnar tækni. Þeir tóku með sér nýjar hugmyndir að kennsluaðferðum, aðallega tengdar samfelldu námsmati, verkefnavinnu og nemendamiðaðri nálgun. Heildarniðurstaðan var sú að heimsóknin hafi veitt dýrmætan innblástur og styrkt tengsl milli skóla með von um áframhaldandi samstarf í framtíðinni.
Kennarar MTR fá einnig mikið út úr þessum heimsóknum. Eru umræður um kennslufræði og skólastarf við þessa góðu gesti góð viðbót við þá faglegu símenntun sem þeir sinna öllu jöfnu.
Hér eru tilvitnanir úr könnuninni frá gestum okkar:
„Heimsóknin var mjög auðgandi og veitti mér innblástur. Það sem ég uppgötvaði nýtt var
sterk samþætting stafrænna tækja og nýstárlegrar aðferðafræði sem var aðlöguð að einstöku og sveigjanlegu námsumhverfi. Þetta var frábrugðið hefðbundnu námi vegna nemendamiðaðrar nálgunar og hvernig tækni var notuð ekki aðeins sem stuðningur, heldur sem kjarninn í námi.”
„Það var nýtt fyrir okkur að öll kennsla færi fram á netinu og að það væri undir nemendum komið sjálfum að skipuleggja námsvikuna sína. Með því að ábyrgðin sé þeirra verður sú jákvæða aukaverkun að nemendur verða sjálfstæðari í vinnubrögðum sínum - eitthvað sem þeir munu í auknum mæli þurfa síðar í háskóla og í framtíðarstörfum.”
„Mér líkaði líka mjög vel við gott og afslappað samband kennara og nemenda og hvernig kennarar og nemendur deila námsrými þar sem allir geta sinnt verkefnum sínum og haft samskipti sín á milli. Það sem stóð helst upp úr var kraftmikið en þó notalegt andrúmsloft, sem og skapandi verkefni sem voru hönnuð til að hvetja nemendur áfram. Ég kunni einnig að meta hversu námsferlið var persónulegt og lagað að hverjum og einum.”
„Ég hef mjög jákvæða reynslu af MTR. Þetta er framsækin og nýstárleg stofnun sem býður upp á menntun sem mætir þörfum nemenda í dag. Umhverfið er opið, hlýlegt og mjög hvetjandi, sem skapar aðstöðu til mjög jákvæðrar námsreynslu.”