Evrópskt verkefni um mannréttindi

Úti að leika í snjónum.
Ljósmynd: ΣΤΑΥΡΟΥΛΑ ΧΡΙΣΤΙΝΑ ΙΒΚΟΒΙΤΣ
Úti að leika í snjónum.
Ljósmynd: ΣΤΑΥΡΟΥΛΑ ΧΡΙΣΤΙΝΑ ΙΒΚΟΒΙΤΣ

Þessa viku er hópur nemenda og kennara frá Grikklandi, Lettlandi og Tékklandi í heimsókn í skólanum. Hópurinn telur 21 nemanda og sex kennara en níu nemendur og tveir kennarar MTR taka á móti þeim. Þetta er Erasmus verkefni sem nefnist U2 have a voice” eða „Þú hefur líka rödd“ en markmið þess er fræðsla um mannréttindi og ábyrg þátttaka í lýðræðisþjóðfélagi.

Í gær hófst verkefnið á kynningum og í kjölfarið var m.a. fræðsla um réttindi og stöðu kynsegin fólks og einnig var vinnustofa þar sem unnið var með listaverk sem fjalla um mannréttindi.

Í dag var útivistardagur á Siglufirði. Byrjað var á ratleik um bæinn og eftir það renndu krakkarnir sér á belgjum í skógræktinni. Á morgun fer hópurinn til Akureyrar þar sem bæjarstjórinn tekur á móti þeim og í kjölfarið hitta þau jafnréttisfulltrúa bæjarins. Þá fer hópurinn á Listasafnið og á skauta í Skautahöllinni og enda daginn í MA þar sem þau hitta Ungmennaráð Akureyrar og fræðast um þátttöku ungmenna í nefndum og ráðum bæjarins.

Heimsókninni lýkur á föstudaginn og eftir að hafa heilsað upp á forsetann á Bessastöðum flýgur hver til síns heima. Næsta ferð er svo í byrjun maí þegar okkar fólk heldur til Tékklands til fundar við hópinn á ný.