Skittlestölfræði

Tölffræði mynd GK
Tölffræði mynd GK

Í þessari viku líta nemendur í tölfræði upp úr kennslubókunum og skoða Skittlestölfræði.
Verkefninu er ætlað að setja námsefnið, þ.e. tölfræðina, í aðeins skemmtilegra samhengi. Hvort það hefur tekist skal ósagt látið. Mörgum nemendum hefur reynst erfitt að sleppa alveg bókinni og vera sjálfstæð í dæmagerð og útreikningum. Ingu kennara hefur hins vegar fundist þetta mjög  „gefandi“ enda mikið af Skittles í boði.