Endurmenntun hjá góðum grönnum mynd ÞH
Á skóladagatali hvers árs eru fjórir dagar sérstaklega merktir endurmenntun kennara, tveir í upphafi skólaársins og aðrir tveir í lok þess, en auk þess sinnir starfsfólk skólans ýmiskonar endurmenntun árið um kring. Á þessum tveimur dögum í lok síðustu skólaára hefur fjölbreytt endurmenntun verið á dagskrá t.d. ýmis námskeið og fyrirlestrar auk skólaheimsókna innanlands- sem utan.
Að þessu sinni var ekki leitað langt yfir skammt því skipulagðar voru heimsóknir til okkar góðu granna í Suður-Þingeyjarsýslu; Framhaldsskólann á Húsavík og Framhaldsskólann á Laugum. Á báðum stöðum fengum við höfðinglegar móttökur jafnt starfsfólks sem stjórnenda. Fengum kynningu á skipulagi náms í hvorum skóla, skoðuðum húsakynni og aðstöðu og svo var rætt í minni hópum um stakar kennslugreinar, tækifæri og áskoranir. Margt áhugavert bar á góma og er ekki ósennilegt að áhrifa heimsóknanna gæti þegar skólinn fer aftur af stað næsta haust.
Gist var í góðu yfirlæti að Narfastöðum í Reykjadal og eins gafst starfsmannahópnum tími til að skoða sig aðeins um á Húsavík. Var þetta góður endir á samveru vetrarins. Myndir