Fréttir

Aðgangur foreldra að Innu

Forráðamenn nemenda yngri en 18 ára geta fengið aðgang að Innu. Þeir sækja sér lykilorð  á www.inna.is í gegnum "gleymt lykilorð" (sjá lýsingu hér að neðan) og fá sent nýtt lykilorð á netfang forráðamanns sem skráð var í Innu þegar sótt var um skólann. Forráðamaður notar eigin kennitölu. Gleymt lykilorð Nemandi sem hefur týnt lykilorði sínu, svo og forrráðamaður nemanda yngri en 18 ára, geta sótt sér lykilorð að Innu. Lykilorðið er sent á netfangið sem skráð er í Innu. 1. Smellt er á tengilinn "Gleymt lykilorð" til hægri á innskráningarsíðu Innu, www.inna.is. 2. Kennitalan er slegin inn og MTR valið. 3. Inna sendir sjálfkrafa notendanafn (nota má hvort heldur er notendanafnið eða kennitöluna) og lykilorð í tölvupósti á það netfang sem skráð er í Innu.
Lesa meira

Akstur til 2. október

Nú er akstur hafinn fyrir grunnskólann og hefur verið gerð ný akstursáætlun fram að gangaopnun og er áætlunin eftirfarandi:   Frá Siglufirði Frá Ólafsfirði mánudagur 7:45 8:20   15:30 16:00 þriðjudagur 7:45 8:20   15:30 16:00 miðvikudagur 7:45 8:20   15:30 16:00 fimmtudagur 7:45 8:20   15:30 16:00 föstudagur 7:45 8:20   15:30 16:00 Við látum vita ef það verða breytingar á þessu.
Lesa meira

Undirritun samnings

Undirritaður hefur verið samningur við Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar um heilbrigðisþjónustu fyri rnemendur skólans. Af því tilefni komu Konráð Karl Baldvinsson forstjóri, Valþór Stefánsson, framkvæmdastjóri lækninga og reksturs ásamt Önnu Gilsdóttur framkvæmdastjóra hjúkrunar. Með þeim á myndinni eru Lára Stefánsdóttir skólameistari og Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir aðstoðarskólameistari.  
Lesa meira

Nýnemadagur

Í dag er nýnemadagur í Menntaskólanum á Tröllaskaga. Í þetta sinn eru allir nemendur skólans nýnemar þannig að við gerum ráð fyrir skemmtilegum degi með fjöri og uppákomum. Nemendafélagið skipuleggur daginn af miklum dugnaði en undirbúningur hefur staðið frá skólabyrjun.  Myndir 
Lesa meira

Umfjöllun í Fréttablaðinu

Í dag er umfjöllun um Menntaskólann á Tröllaskaga í Fréttablaðinu sem má lesa á pdf formi á Netinu. 
Lesa meira

Malbikun Héðinsfjarðarganga

Malbikun hefst á mánudag í Héðinsfjarðargöngum og leggur rútan af stað frá Siglufirði kl. 7:30 á meðan á því stendur sem reiknað er með að verði um hálfur mánuður. Síðdegisferðin verður um Lágheiði og leggur af stað frá Ólafsfirði kl. 15:30 á mánudag en síðan verða ferðir skoðaðar í samhengi við stundatöflu nemenda. Við viljum nota tækifærið og þakka fyrir hversu mikið nemendur fá að fara um göngin sem hefur verið meira en við reiknuðum með og gert ferðirnar auðveldari. Sérstaklega hjálpar til að önnur ferðin getur verið um göngin á meðan á malbikunartíma stendur.  Til gamans má geta þess að reiknað er með að malbika um 600 metra á dag en tvö lög eru lögð af malbiki í göngin.
Lesa meira

Fyrsti skóladagur

Fyrsti skóladagur gekk afar vel, nemendur voru áhugasamir og duglegir við að koma sér inn í tölvukerfin sem þau þurfa að nota í námi sínu og kynnast verkefnunum framundan. 
Lesa meira

Skólaakstur fyrstu vikuna

Fjallabyggð hyggst hefja skólaakstur/áætlunarferðir á milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar 1. september n.k. Búið er að bjóða aksturinn út og verið er að skoða þau tilboð sem bárust. Fjallabyggð hyggst hinsvegar koma til móts við nemendur menntaskólans fram að þeim tíma með ferðum til skólans að morgni og heim að skóla loknum. Eftir á að taka ákvörðun um verðlag á þessa þjónustu almennt (fyrir aðra farþega en grunnskólanema) og því er ekki hægt að gefa upp kostnað. Fyrsta ferðinn verður farinn að kl. 7:45 mánudaginn 23. ágúst frá Torginu.
Lesa meira

Matartilboð fyrir nemendur

Því miður er ekki aðstaða í skólahúsnæðinu fyrir mötuneyti en veitingastaðir í Ólafsfirði eru með sérstök tilboð til nemenda sem má finna undir valkostinum "Skólinn".
Lesa meira

Héðinsfjarðargöng á skólasetningu

Háfell hefur boðist til að fylgja gestum í gegnum göngin frá Siglufirði til Ólafsfjarðar og til baka aftur þannig að Siglfirðingar komist á skólasetningu um göngin. Bíll fer frá þeim á undan og fylgir fólki í gegn. Einungis er hægt að fara nákvæmlega á þeim tíma sem gefinn er upp því göngin verða bara opnuð á þeim tíma: Siglufjörður - Ólafsfjörður kl. 12:30 Ólafsfjörður - Siglufjörður kl. 16:00 Bílar verða að vera við gangamunnann nákvæmlega á þessum tíma til að fara í gegn. Skólameistari
Lesa meira