Breytingar 4. maí

MTR mynd GK
MTR mynd GK

Skólinn verður opnaður næsta mánudag 4. maí. Nemendur og kennarar eru velkomnir í skólann. Reglur um 2 metra fjarlægð, hámark 50 í einu rými, handþvott og sprittun gilda áfram. Staðkennsla fer ekki fram. Ef kennarar velja að mæta í skólann verður kennsla þeirra í fjarkennslustofunni eins og verið hefur.

Skólaakstur verður frá Siglufirði en ekki frá Dalvík.

Ef einhverjar spurningar vakna vinsamlega hafðu samband við skólameistara á netfanginu lara@mtr.is