Brautskráning í dag

Ljósmynd: Gísli Kristinsson.
Ljósmynd: Gísli Kristinsson.

Þrjátíu nemendur brautskráðust frá Menntaskólanum á Tröllaskaga í dag. Alls hafa nú 495 nemendur brautskráðst frá skólanum en þetta er þrettánda starfsár hans.

Stærstur hluti nemenda skólans eru fjarnemar. Flest eru búsett á Höfuðborgarsvæðinu og alltaf eru einhverjir nemenda skólans búsettir erlendis. Útskriftin í morgun bar keim af þessu því fimm útskriftarnemar eru búsettir á Norðurlandi og 25 eru fjarnemar, þar af einn búsettur í Danmörku.

Við athöfnina í dag fékk Amalía Þórarinsdóttir viðurkenningu fyrir ágætiseinkunn í íslensku, stærðfræði, lýðheilsu og listgreinum og Anna Brynja Agnarsdóttir fyrir ágætiseinkunn í íslensku, stærðfræði, lýðheilsu og íþróttagreinum. Þá fékk Hafsteinn Máni Guðmundsson viðurkenningu fyrir ágætiseinkunn í spænsku og Stefanía Ósk Eysteinsdóttir fyrir ágætiseinkunn í lýðheilsu.

Lára Stefánsdóttir skólameistari ræddi í ávarpi sínu mikilvægi þess að nemendur þekktu sjálf sig því þannig geti þau ákveðið hvað þau vilja verða. Mikilvægt væri að komast að því í hverju maður er góður svo hægt sé að styrkja þá hæfileika. Þá ræddi hún vítt og breitt um próf og benti á að það væri ekki endilega vísbending um góða menntun að fá háa einkunn á prófi.

Amalía Þórarinsdóttir flutti ávarp fyrir hönd nýstúdenta. Hún þakkaði kennurum og nemendum fyrir samveruna og kvaðst þakklát fyrir öll tækifærin sem skólinn hefði veitt henni. Hún nefndi sérstaklega námsferðir til útlanda þar sem hún hefði fengið að kynnast jafnöldrum sínum í framandi löndum og um leið menningu ólíkra þjóða. Með þetta og annað sem hún hefði lært í skólanum í farteskinu væri hún vel undirbúin fyrir framtíðina.

Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir aðstoðarskólameistari stýrði athöfninni í dag og Ave Kara Sillaots lék á píanó.