Box í MTR

Box í MTR mynd GK
Box í MTR mynd GK

Nemendur í MTR fengu smá sýnikennslu í grunnatriðum box. Fyrsti hálftími dagsins í skólanum er skipulagður í ýmiskonar uppbrot þar sem kennarar koma inn með fræðslu og þá oftast eitthvað sem sýnir nýja hlið á kennurunum. Bergþór Morthens myndlistarkennari fór yfir nokkur grunnatriði með nemendum sem fengu svo að spreyta sig. Nemendur sýndu góð tilþrif og fengu smjörþefinn af hinni göfugu list sem boxið er. Myndir