Héðinn mynd GK
Í dag fengum við sérlega góða heimsókn þegar Héðinn Unnsteinsson sótti okkur heim og hélt erindi um andlega líðan fyrir nemendur og starfsfólk. Héðinn hefur undanfarin 25 ár verið frumkvöðull í geðheilbrigðismálum og er höfundur bókarinnar „Vertu úlfur“ sem kom út árið 2015. Þjóðleikhúsið setti samnefnt verk á fjalirnar árið 2021. Hann er með kennaramenntun og auk þess menntaður stefnumótunarsérfræðingur með meistaragráðu í alþjóðlegri stefnumótun. Hann starfar í forsætisráðuneytinu og hefur sinnt stundakennslu við Háskóla Íslands auk þess að vera rithöfundur og fyrirlesari. Áður starfaði hann hjá heilbrigðisráðuneytinu og Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni (WHO).
Á síðasta ári einsetti hann sér að fara með erindi um andlega líðan í alla framhaldsskóla landsins og fékk nokkra góða bakhjarla til þess að styrkja sig til þess. Hófst hann handa á síðustu önn og heldur nú áfram þar sem frá var horfið. Í erindi sínu ræðir Héðinn um ýmsa grunnþætti geðheilsu, s.s. skynjun, tilfinningar og hugsun sem og mikilvægi tengsla, góðra samskipta og sjálfsmildi. Auk þess viðrar hann áhyggjur sínar af minnkandi tengslum við náttúruna og milli kynslóða sem og yfirdrifna skjánotkun og hvaða afleiðingar þessi atriði hafa á andlega heilsu okkar.
Erindi Héðins var sérlega líflegt og áhugavert og vakti viðstadda til umhugsunar um ýmsa þætti sem geta stuðlað að betri andlegri heilsu. Benti hann m.a. á þá kunnu staðreynd að allt sem við veitum athygli vex. Meðan við eyðum um 5 klukkustundum í símum okkar á sólarhring, eins og evrópskar kannanir sýna, verður framlag okkar til líðandi stundar takmarkað sem og tenging okkar við eigin vitund.