Á skíðum skemmti ég mér

Skíðadagur mynd ÞH
Skíðadagur mynd ÞH

Snjórinn hefur glatt okkur hér norðanlands að undanförnu. Tilkoma hans hefur hleypt lífi í skíðabrekkurnar þar sem iðkendur skíðaíþrótta hafa þeyst niður brekkurnar og brunað eftir gönguskíðabrautum síðustu vikur. Nemendaráð kom með þá hugmynd til skólastjórnenda að nýta tækifærið og hafa skíðadag fyrir nemendur. Stjórnendur tóku vel í hugmyndina og sáu til þess að nemendur hefðu aðgang að skíðasvæðinu í Tindaöxl á Ólafsfirði og þann búnað sem til þyrfti. Eftir hádegi í gær fjölmenntu nemendur í Tindaöxl og áttu þar frábærar stundir. Sumir voru að stíga á skíði í fyrsta sinn og fengu leiðsögn frá íþróttakennurum um hvernig best væri að bera sig að en aðrir þaulvanir úr skíðabrekkunum í Fjallabyggð. Sumir voru á snjóbrettum, aðrir prufuðu gönguskíðin en flestir voru á svigskíðum. En hverju nafni sem græjurnar kallast þá skemmtu sér allir vel og veður og aðstæður voru með besta móti eins og myndirnar bera með sér. Myndir