UMHV1SU05 - Umhverfismál og sjálfbærni - heimsmarkmið

sjálfbærni og umhverfi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum er fjallað um umhverfismál og sjálfbærni. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna eru lögð til grundvallar ásamt umhverfisverkefninu Skólar á grænni grein á vegum Landverndar. Nemendur nýta sér þætti umhverfisstjórnunarkerfis sem verkefnið Skólar á grænni grein byggir á. Nemendur ganga þar í gegnum sjö skref umhverfisstjórnunar, sem er alþjóðlega viðurkennd aðferð og notuð um allan heim. Nemendur velja sér jafnframt þema til að vinna með af þeim þemum sem í boði eru innan verkefnisins. Í áfanganum er hugtakið geta til aðgerða haft að leiðarljósi. Í getu til aðgerða er lýðræðislegum vinnubrögðum beitt í námi svo nemendur geti haft áhrif á hvernig, hvenær, hvar og hvað þeir læra. Einnig felst í því að virkja nemendur til aðgerða innan skólans eða síns nærsamfélags.

Þekkingarviðmið

  • umhverfisstjórnun
  • stöðu umhverfismála
  • mikilvægi samvinnu í umhverfismálum
  • sjö skrefum umhverfisstjórnunar (Skólar á grænni grein)
  • alþjóðlegri samvinnu varðandi umhverfismál
  • tengslum milli umhverfis, hegðunar neytenda og mannréttinda
  • fjölbreyttum leiðum einstaklings til vistvænna lifnaðarhátta

Leikniviðmið

  • vinna með sjö skref umhverfisstjórnunar
  • lesa efni um umhverfismál á gagnrýninn hátt
  • vinna saman í umhverfismálum
  • velja vistvæna kosti umfram síður vistvæna, meðal annars með því að nýta umhverfismerkingar á vörum
  • flokka, endurnýta og endurvinna til að minnka umhverfisáhrif
  • útskýra og beita hugtakinu sjálfbærni
  • ræða og rökstyðja hvernig mannréttindi, hagkerfi og umhverfisvernd tengjast sjálfbærni

Hæfnisviðmið

  • beita sjö skrefum umhverfisstjórnunar
  • hafa áhrif á nærsamfélag
  • skilja umræðu og hugtök tengd umhverfismálum
  • geta tekið virkan þátt í umræðu um ákvarðanatöku um nýtingu náttúruauðlinda
  • taka ábyrga og gagnrýna afstöðu til umhverfismála og rökstyðja þá afstöðu
  • sýna ábyrgð í eigin umgengni við náttúruna
  • öðlast heildstæða mynd af vanda sem ógnar framtíð jarðar og mikilvægi alþjóðahyggju í þessum málaflokki
  • vera meðvitaður og gagnrýninn neytandi
  • átta sig á áhrifum hvers einstaklings sem neytanda á umhverfi og samfélög
  • taka þátt í nýsköpun sem leiðir til sjálfbærni
  • minnka umhverfisáhrif sín með því að velja umherfisvænar vörur, draga úr sóun og endurnýta eða endurvinna það sem hægt er á skapandi hátt
  • ræða og túlka á gagnrýninn hátt upplýsingar sem tengjast umhverfismálum
  • vera virkur og ábyrgur þátttakandi í umræðu um umhverfismál
Nánari upplýsingar á námskrá.is