LSTR2SK05 - Sköpun

Sköpun

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Inngangur að listum
Áfanginn miðar að því að opna fyrir sköpunarkraft nemenda og gera þá óhrædda við að prófa, framkvæma og þróa hugmyndir sínar án þess að hræðast útkomuna. Áhersla er lögð á tilraunavinnu þar sem unnið er í og með ólík efni og miðla. Nemendur gera tilraunir með margvíslegan óhefðbundinn efnivið þar sem leitast verður við að finna óvæntar og skapandi leiðir til úrlausnar. Í áfanganum eiga nemendur að geta sýnt frumkvæði og skapandi nálgun í verkefnum sínum og beitt viðeigandi aðferðum við útfærslu verka. Kennslan er einstaklingsbundin og miðar að því að gera nemendur tilbúna til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.

Þekkingarviðmið

  • að sköpun er hægt að vinna í hvaða miðli sem er
  • að hægt er að skapa raunveruleg verðmæti
  • konsept hugsun
  • vinnuumhverfi, vinnutækjum og áhöldum sinnar skapandi hugsunar
  • skapandi hugsun og hugflæði
  • hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar
  • að miðla listsköpun sinni með því að tjá sig um hana og sýna
  • að þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
  • að meta eigið vinnuframlag

Leikniviðmið

  • beita skapandi hugsun
  • sjá möguleika í skapandi hugsunar í mismunandi miðlum
  • tjá sig um eigin sköpun
  • beita mismunandi miðlunarleiðum í sköpun sinni
  • nýta sér hugarflæði í hugmyndavinnu
  • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
  • skiptast á skoðunum og setja fram hugmyndir sínar og bregðast við viðmælendum

Hæfnisviðmið

  • vera skapandi í hugsun
  • skapa með mismunandi miðla
  • vera meðvitaður um menningarlegt hlutverk listsköpunar
  • fullvinna hugmyndir undir leiðsögn kennara
  • tjá sig hiklaust um eigin sköpun við aðra viðmælendur
  • skapa eigin verk byggt á eigin listrænum styrk undir leiðsögn kennara
  • skilgreina eigin verk
  • standa að sýningu þar sem nemandinn miðlar verkum sínum
  • kynna eigin verk og geta brugðist við og tjáð skoðanir sínar um verk annara
  • tjá sig hiklaust og taka þátt í samræðum um myndlist við ólíka viðmælendur
  • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
  • þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
  • meta eigið vinnuframlag
Nánari upplýsingar á námskrá.is