stjórnmálafræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Inngangur að félagsvísindum
Farið yfir helstu einkenni íslenskra stjórnmálaflokka og stjórnkerfis í samhengi við byggða- og samfélagsþróun eftir 1900 og fjallað um hugmyndafræði flokkanna í alþjóðlegu samhengi. Íslenska valdakerfið skoðað, þrískipting ríkisvaldsins, stjórnarskráin og fyrirhugaðar breytingar á henni og samspil helstu valdþátta. Markmiðið að nemendur þekki í grófum dráttum sögu og einkenni íslenska stjórnkerfisins og flokkanna, skilji hvernig valdþættir spila saman og viti hvar helstu átakalínur liggja. Efnið á að auðvelda nemendum að leggja gagnrýnið mat á álitaefni og taka þátt í lýðræðislegri umræðu á upplýstan hátt. Mikilvægt að nemendur lesi kennslubókina þar sem hún miðlar ákveðinni grunnþekkingu. Í og utan kennslustunda verða gerð fjölmörg verkefni þar sem oft reynir á eigin heimildaöflun og gagnrýnið mat á heimildum. Áhersla lögð á að fjalla um málefni sem efst eru á baugi í stjórnmálum, efnahagsmálum og félagsmálum og efni sem nemendur hafa sérstakan áhuga á.
Þekkingarviðmið
- helstu viðfangsefnum, aðferðum og hugtökum stjórnmálafræðinnar
- hugmyndafræði, stefnu og viðhorfum í stjórnmálum
- þrískiptingu ríkisvaldsins og helstu stoðum íslenska stjórnkerfisins
- þróun íslenska valdakerfisins, stjórnmálaflokka og helstu hagsmunasamtaka
Leikniviðmið
- afla sér traustra upplýsinga um stjórnmálaleg efni
- greina upplýsingarnar og setja í fræðilegt samhengi
- beita hugtökum stjórnmálafræðinnar á dagleg pólitísk úrlausnarefni
- tengja sögu íslensku flokkanna við helstu hugmyndakerfi í stjórnmálum
Hæfnisviðmið
- skilja pólitískt samhengi í samfélaginu
- þekkja birtingarform einstakra stjórnmálastefna í samfélagslegum ákvörðunum
- rökræða pólitísk og samfélagsleg álitaefni á málefnalegan og gagnrýninn hátt
- taka virkan þátt í lýðræðislegu samfélagi
Nánari upplýsingar á námskrá.is