ÚTIV3SV05 - Útivist í snjó og vetrarfjallamennska

vetrarfjallamennska, Útivist í snjó

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: A.m.k. 10 einingar í útivist eða fjallamennsku á 2. þrepi
Áfanginn er að mestu leyti verklegur og kynnir útivist sem hægt er að stunda þegar er snjór. ísklifur, skíði (alpa, fjalla og göngu), snjóbretti, snjóhúsagerð og fjallamennska. Helmingur tímafjöldans fer í ferðir á eigin vegum til að auka hæfni í undirbúning, skipulagningu, rötun, kortalestri og hópstjórn. 1 tveggja nátt ferð og svo styttri ferðir með samnemendum þar sem þeir skiptast á að leiða hópinn. Nemendur kynnast undirstöðuatriðum í ísklifri, skíðun (alpa, fjalla og göngu), snjóbrettun, gerð snjóhúsa, snjóflóðaathugun og fjallamennsku. Mikil áhersla verður lögð á að nemendur verði sjálfstæðir í óbyggðum, geti metið aðstæður, t.d. við breytt veðurskilyrði, með tilliti til öryggis og tekið skynsamar ákvarðanir varðandi t.d. leiðarval og notkun öryggisbúnaðar.

Þekkingarviðmið

  • útivist þar sem krafist er sérstaks útbúnaðar, td. fyrir gönguferðir, skíðaferðir, ísklifur og fl.
  • náttúru Íslands og góðrar umgengni við hana

Leikniviðmið

  • leggja mat á aðstæður í óbyggðum og beita þeim sérhæfða búnaði sem notaður er til útivistar
  • setja saman ferðaáætlun og leiða hóp í styttri ferð
  • rata eftir áttavita og GPS staðsetningartæki

Hæfnisviðmið

  • meta aðstæður með tilliti til öryggis og taka skynsamar ákvarðanir í samræmi við þær, sérstaklega ef breytingar verða á aðstæðum eins og t.d. breytt veðurskilyrði eða snjóalög,
  • geta stundað útivist þar sem krafist er sérstaks útbúnaðar
  • ferðast um óbyggðir Íslands á öruggan og ábyrgan hátt
  • geta tekið þátt í upplýstri umræðu og rökræðum um málefni er tengjast útivist
  • vera meðvitaður um umhverfi sitt, hafa lært að njóta þess, virða og nýta á skynsamlegan hátt með sjálfbærni í huga
  • vera vel undirbúnir fyrir frekara nám einkum á sviði kennslu útivistar á háskólastigi
Nánari upplýsingar á námskrá.is