EÐLI2AV05 - Afl- og varmafræði

Afl- og varmafræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Inngangur að náttúruvísindum
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist skilning á þeim eðlisfræðistærðum sem snúa að afl- og hreyfifræði. Nemendur eiga að geta gert greinarmun á stigstærð og vektorstærð og geta nefnt grunneiningar SI einingakerfisins og unnið með þær. Í áfanganum læra nemendur hugtök hreyfi-, afl- og varmafræðinnar og kynnast þeim með því að gera tilraunir þar sem þeir læra að umgangast mælitæki og skynjara á ábyrgan hátt. Í tilraunum eru notaðir sérstakir hreyfi-, kraft-, þrýstings- og hitaskynjarar sem nemendur geta tengt við sínar eigin tölvur. Nemendur læra að safna gögnum og vinna með þau í þar til gerðum hugbúnaði. Lögð er áhersla á að nemendur læri skipulögð vinnubrögð, skili öllum útreikningum og kunni að skrifa einingajöfnur til að sjá samhengið milli mismunandi eðlisfræðistærða. Nemendur eiga að geta tjáð sig lipurt bæði munnlega og skriflega um þau efni sem tekin eru fyrir. Meginmarkmið áfangans er að nemendur þekki vel sambandið milli hreyfi-, afl-, og varmafræðinnar og skilji hvernig einingar eru byggðar upp úr grunneiningum, skilji og geti notað lögmálin og formúlur til að leysa vandamál og reiknað dæmi.

Þekkingarviðmið

  • einingakerfi raunvísindanna
  • muninum á stigstærð og vektorstærð
  • eðlismassa
  • hugtökum hreyfifræðinnar s.s. hraði og hröðun
  • krafthugtakinu skilgriningunni á 1 N krafti
  • 1., 2. og 3. lögmáli Newtons
  • hvað er átt við með orkuvarðveislu
  • hugtökunum vinna, orka, afl og nýtni
  • hvernig orka breytir um form og varðveitist í lokuðum kerfum (t.d. hvernig stöðuorka breytist í hreyfiorku)
  • þrýstingi í vökva og gasi
  • ástandsjöfnunni og lögmáli Daltons
  • fyrsta meginlögmáli varmafræðinnar

Leikniviðmið

  • finna út eðlismassa á hlutum
  • nota hreyfijöfnurnar til að reikna hraða, tíma, færslu, upphafshraða, lokahraða og hröðun hluta sem hreyfast eftir beinni línu
  • reikna út krafta sem verka á hluti á hreyfingu
  • nota 1., 2. og 3. lögmál Newtons við úrlausn verkefna
  • framkvæma mælingar á hlutum sem hreyfast eftir beinni línu
  • skrá niðurstöður mælinga á skipulagðan hátt
  • tjá sig munnlega og skriflega um hugtök afl- og varmafræðinnar

Hæfnisviðmið

  • útskýra munnlega og skriflega hugtök afl- og varmafræðinnar með því að taka dæmi úr daglegu lífi
  • skiptast á skoðunum og bregðast við viðmælendum sínum
  • sýna fram á lögmál afl- og varmafræðinnar með því að gera tilraunir einn eða í samstarfi við aðra
  • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
  • þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
  • meta eigið vinnuframlag
Nánari upplýsingar á námskrá.is