Markaðsfræði - MAR2A05

Lýsandi heiti áfanga: Markaðsfræði
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: Inngangur að félagsvísindum

Lýsing á efni áfangans:
Áfanginn miðar að því að fara yfir grundvallarhugtök sem tengjast markaðsfræði og hvernig hugmyndafræðin er notuð til að markaðssetja vörur og þjónustu.
Sérstaklega er farið í mikilvægi markaðsstarfs í síbreytilegu umhverfi og afstöðu fyrirtækja til ýmissa þátta í rekstri.
Markmiðið er að nemendur kynnist hugmyndafræði markaðsfræði með sérstöku tilliti til ferðaþjónustu, menningarviðburða og lista. Þannig að nemendur geti tengt saman hugmyndafræði markaðsfræðinnar og aðferðafræði við markaðssetningu ferðaþjónustu, menningarviðburða og lista og lært hagnýtar aðferðir við notkun markaðsfræði við sölu, verðlagningu, vöruþróun og kynningu vara/þjónustu í ferðaþjónustu, menningu og listum.
Ætlunin er að nemendur verði svolítið sjálflægir í þessari vinnu og huga að því hvernig þeir geti nýtt markaðsfræðina til að kynna sjálfan sig , vinnu sína eða hugmyndir.

Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • tilgang og hugmyndafræði markaðsfræðinnar
  • þýðingu markaðsstarfs fyrir fyrirtæki og samfélag
  • helstu þáttaum almenns markaðsstarfs
  • helstu hugtökum og hugmyndum varðandi vöru og vöruþróun
  • þekki til helstu samkeppnisforma og mikilvægustu atriða samkeppnisgreiningar
  • helstu hugmyndum um kaupvenjur á neytendamarkaði og fyrirtækjamarkaði
  • mikilvægi markaðsáætlana
  • mismunandi greiningartækja og vinnubragða við áætlanagerð
  • helstu markaðsmiðlum í nær -og fjærsamfélagi
  • mikilvægi á góðri skipulagningu og skrásetningu við framkvæmd verkefna
  • sjálfum sér, hugsun og verklagi.
  • Að nemandinn tileinki sér gagnrýna og skapandi lausnarhugsun og öðlist með því færni í að miðla eigin hugmyndum og skoðunum.


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • í að virkja hugmyndaflugið.
  • Í að nýta sér hugmyndafræði og aðferðafræði markaðsfræðinnar við markaðssetningu á eign verkum og hugmyndum
  • í að kynna eignin hugmyndir og verkefni
  • í að tjá sig um eigin verk og annarra fyrir framan samnemendur.
  • í hópastarfi sem meðal annars felur í sér samvinnu, virðingu, jákvæð samskipti, stjórnun, ábyrgð og ákvarðanatöku


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • gera markaðsáætlun sem hennti þeim/þeirra verkefni
  • gera kynningaráætlun fyrir eigð verkefni
  • tileiknka sér skapandi lausnarhugsun sem hann geti yfirflutt og nýtt bæði í leik og starfi .
  • öðlist aukna trú á sjálfan sig í skapandi vinnu og þori að stíga út fyrir þægindarammann og vinna með eigin hugmyndir á sjálfstæðan og persónulegan hátt.


Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.

Birt með fyrirvara um breytingar