Lýsandi heiti áfanga: Lýðheilsa: Bóklegt og verklegt
Viðfangsefni: Heilsa, lífsstíll, hreyfing, þjálfunarform, vímuefni, hreyfingarlota
Framhaldsskólaeiningar: 3
Undanfari: Enginn
Lýsing á efni áfangans:
Bóklegi hlutinn: Fjallað verður um heilsu og hvað heilbrigður lífstíll sé. Fjallað verður almennt um hreyfingu og mikilvægi hennar hjá
öllum aldurshópum, þó verður sérstök áhersla á framhaldsskólaaldurinn. Farið verður yfir þrjú algengustu
þjálfunarformin (þol, styrk og liðleiki) og hinar ýmsu þjálfunaraðferðir innan hvers forms skoðuð. Farið verður yfir áhrif
vímuefna (tóbak, áfengis og lyfja) á heilsu og líkamlegt form einstaklinga. Farið er yfir uppbyggingu á hreyfingarlotu (einni stakri æfingu)
með áherslu á upphitun og niðurlags og áhrifum þeirra á líkamann.
Verklegi hlutinn: Kennslan fer fram utandyra og inni í íþróttasal. Tímarnir verða fjölbreyttir þar sem farið verður í ýmsa leiki
ásamt hinum ýmsu íþróttagreinum. Einnig verður farið í þau þjálfunarform sem tekin eru fyrir í bóklegu kennslunni og
nemendur fá tækifæri til að prufa hinar ýmsu þjálfunaraðferðir innan hvers þjálfunarforms.
Lokamarkmið áfangans:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- hvað almennt heilbrigði er
- mikilvægi hreyfingar hjá sínum aldurshóp
- góðs lífsstíls sem inniheldur hreyfingu
- mikilvægi upphitunar fyrir áreynslu og niðurlags eftir áreynslu
- fjölbreyttum þjálfunaraðferðum innan þols, styrks og liðleika
- uppbyggingu hreyfingarloftugerðar (tímaseðlagerð)
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- iðka fjölbreytta grunnþjálfun og beita mismunandi þjálfunaraðferðum til þess
- nota almenna og sérhæfða upphitun
- finna púls og nota púlsklukku rétt
- búa til skipulagðan og áhugaverðan tímaseðil
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta sér möguleika til hreyfingar í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni
- nýta sér möguleika til að flétta hreyfingu í daglegt líf eftir bestu getu
- viðhalda eða bæta eigið líkamshreysti
Námsmat:
Í áfanganum er leiðsagnarmat með símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa einnig að standast mætingarkröfur
áfangans.
Birt með fyrirvara um breytingar