Félagslíf - FÉLÍ1E02

Lýsandi heiti áfanga: Leiklist/tónlist/skreytingar
Framhaldsskólaeiningar: 2
Undanfari: Enginn

Lýsing á efni áfangans:
Nemendur undirbúa árshátíð skólans með leik, söng og hljófæraleik ásamt því að skipuleggja salinn og skreyta. Nemendur fá leiðbeiningar í spuna og því hvernig maður kemur fram á sviði, t.d. sem kynnir eða skemmtikraftur. Þeir þjálfast í að skipuleggja viðburði og hugsa fyrir því sem þarf til að skemmtunin gangi snuðrulaust fyrir sig. Nemendur ákveða sætaskipulag og leggja á borð ásamt því að skreyta bæði borð og sal.


Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • undirbúningi árshátíðar
  • hvað þarf að fá utanfrá og hvað er hægt að gera á staðnum
  • skreytingum og skipulagi borðhalds
  • spuna og framkomu á sviði


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • halda árshátíð
  • framkomu á sviði
  • spuna og spaugi
  • skipuleggja með tilliti til sætaskipulags og skreytinga


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skipuleggja, undirbúa og halda árshátíð skólans fyrir nemendur og starfsfólk í fallega skreyttum sal með kynni og skemmtiatriðum.


Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati, nemendur þurfa að standast mætingarkröfur áfangans.

Birt með fyrirvara um breytingar