Menntaskólinn á Tröllaskaga

Menntaskólinn á Tröllaskaga

-toppur: Linkar

  • Enska
  • Spánn

-toppur: Slogan

Frumkvæði
Sköpun
Áræði

  • Moodle
  • inna
stillingar.is
  • Skólinn
    • Áætlanir og stefnur
      • Áætlun Menntaskólans á Tröllaskaga gegn ofbeldi
      • Byggjum brú
      • Fjarvinnustefna MTR
      • Fræðslustefna Fjallabyggðar
      • Heilsu og forvarnarstefna
      • Jafnréttisáætlun og jafnlaunastefna
      • Menningarstefna
      • Móttökuáætlun fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku
      • Óveðursdagar
      • Persónuverndarstefna
      • Sjálfsmatsáætlun
      • Starfsmannastefna
      • Stefna í erlendum samskiptaverkefnum
      • Stefnumótun 2024-2026
      • Umhverfis og loftslagsstefna
      • Viðbragðsáætlun MTR
      • Viðbragðsleiðbeiningar fyrir skóla
      • Viðbrögð við áföllum
      • Öryggisáætlun
    • Fréttir
      • Á döfinni
      • Fréttayfirlit
    • Frjáls mæting
    • Fyrirspurnir
    • Gjaldskrá
    • Innritun
      • Grunnskólanemar
    • Listaverk í MTR
    • Myndir
      • Vorönn 2025
      • Haustönn 2024
      • Vorönn 2024
      • Haustönn 2023
      • Vorönn 2023
      • Haustönn 2022
      • Vorönn 2022
      • Haustönn 2021
      • Vorönn 2021
      • Haustönn 2020
      • Vorönn 2020
      • Haustönn 2019
      • Vorönn 2019
      • Haustönn 2018
      • Vorönn 2018
      • Haustönn 2017
      • Vorönn 2017
      • Haustönn 2016
      • Vorönn 2016
      • Haustönn 2015
      • Vorönn 2015
      • Haustönn 2014
      • Vorönn 2014
      • Haustönn 2013
      • Vorönn 2013
      • Haustönn 2012
      • Vorönn 2012
      • Haustönn 2011
      • Vorönn 2011
      • Haustönn 2010
    • Mötuneyti
    • Nefndir og ráð
      • Fagteymi ofbeldismála
      • Foreldraráð
        • Foreldraráð - lög
      • Skólanefnd
        • Fundargerðir skólanefndar
        • Starfsáætlun skólanefndar
      • Skólaráð
      • Nemendaráð
      • Neyðarstjórn MTR
    • Samningar
    • Sjálfsmat
    • Skólaakstur
    • Skóladagatal 2024-2025
    • Skólareglur
      • Reglur um námsframvindu
      • Reglur um meðferð heimilda
      • Reglur um verkefnaskil
      • Reglur vegna vímuefna
      • Reglur fyrir utanlandsferðir
      • Skólasóknar og ástundunarreglur
      • Tölvureglur
      • Umgengnisreglur
    • Skýrslur og greinar
    • Starfsfólk
      • Siðareglur kennara
      • Skipurit
      • Starfsmannastefna
    • Verkefni
    • Umhverfismál
      • Umhverfismál
      • Umhverfismál fréttir
  • Námið
    • Áfangaframboð
    • Áfangalýsingar
    • Bókalisti
    • Bókasafn
    • Erlend verkefni
      • Erlend verkefni
      • Erlend verkefni fréttir
    • Fyrirkomulag náms eftir brautum
    • Grunnþættir menntunar
    • Heimildaskráning
    • Inna: Leiðbeiningar um innskráningu
    • Námsbrautir
      • Félags- og hugvísindabraut
      • Grunnmenntabraut
      • Íþróttabraut
      • Kjörnámsbraut
      • Kjörnámsbraut - skíða og brettasérhæfing
      • Listabraut
      • Náttúruvísindabraut
      • Starfsbraut
      • Stúdentsbraut að loknu starfsnámi
      • Útivistarbraut
    • Námsmat
    • Mat á reynslu til eininga
    • Stafrænar sýningar
    • Tölvur
    • Viðtalstímar
  • Fjarnám
    • Skráning í fjarnám
    • Algengar spurningar
    • Sjómenn
    • Gjaldskrá fyrir fjarnám
    • Grunnskólanemar
    • Innritun
    • Íþróttafólk
    • Verkefnaskil og námsmat
  • Velferð
    • Forvarnir
    • Heilsugæsla
    • Náms- og starfsráðgjöf
    • Nemendafélag
    • Umsjón
MTR

Dagatal

Sjá viðburðadagatal
  • Þrítugusta brautskráningin mynd SMH
    24.05.2025

    Þrítugusta brautskráningin frá MTR

    Það var hátíðleg stund í Menntaskólanum á Tröllaskaga í gær þegar þrítugasta brautskráning skólans fór fram. Fimmtíu og tveir nemendur brautskráðust, eru það jafn margir og á vorönn í fyrra og eru það fjölmennustu útskriftarhóparnir frá upphafi. Alls hafa nú 678 nemandur brautskráðst frá skólanum á þeim fimmtán árum sem hann hefur starfað. Útskriftarnemarnir að þessu sinni koma frá þrettán stöðum á landinu og tveir eru búsettir erlendis, enda mikill meirihluti nemenda skólans fjarnemar. Fjórtán útskriftarnemar sáu sér fært að mæta í athöfnina en aðrir fylgdust með í streymi.  Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir aðstoðarskólameistari stýrði athöfninni og flutti ávarp þar sem hún sagði frá starfi skólans. Í máli hennar kom m.a. fram að á þessari önn voru rúmlega 550 nemendur skráðir í nám. Um 90% þeirra fjarnemar og stór hluti af höfuðborgarsvæðinu. Kjörnámsbraut var fjölmennasta brautin og þar á eftir félags- og hugvísindabraut. Starfsmenn voru 29. Erlend verkefni voru sem fyrr áberandi í skólastarfinu og hefur fengist fjöldi styrkja til þeirra. Erasmus-styrkir eru fastur liður í skólastarfinu og hafa gert bæði nemendum og kennurum kleift að fara í ferðir til útlanda sem og að taka á móti nemendahópum erlendis frá. Á þessari önn heimsóttu nemendur m.a. samstarfsskóla í Lettlandi og endurguldu þar heimsókn nemenda þaðan á haustönn. Einnig er MTR UNESCO-skóli sem fléttar heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna inn í allt skólastarf þar sem m.a. er lögð áhersla á mannréttindi, umhverfismál og frið. Þakkaði hún að lokum útskriftarnemum fyrir þann tíma sem þeir hafa varið í Menntaskólanum á Tröllaskaga og óskaði þeim velfarnaðar í öllu því sem þeir taka sér fyrir hendur í framtíðinni. Skólameistarinn Lára Stefánsdóttir flutti einnig ávarp þar sem hún óskaði útskriftarnemum allra heilla og þakkaði þeim fyrir að velja MTR. Lagði hún út frá einkunnarorðum skólans: Frumkvæði - Sköpun - Áræði og sagði að þau lituðu allt skólastarfið bæði hjá nemendum og starfsfólki. Mikilvægt væri nemendum að finna eigin rödd, rækta sína styrkleika, vera gerendur í sínu námi en ekki þrælar þess og átta sig betur á hver þau eru. Það muni hjálpa nemendum að þekkja sig sjálf og vera öruggari í eigin skinni. Með því getur maður frekar notað orku sína í að búa til skemmtilegt og innihaldsríkt líf í stað þess að vera að þóknast öðrum og gera það sem maður heldur að maður eigi að vera að gera. Einnig ræddi hún um þann sjálfsaga sem þarf til að vera fjarnemi og þá áherslu sem starfsfólk skólans legði á að allir nemendur nytu sömu þjónustu og nærgætni, hvort sem þeir væru fjarnemar eða staðnemar, án þess að slakað væri á námskröfum. Að lokum gerði hún að umtalsefni orð ráðherra á dögunum um draugabæinn Ólafsfjörð og í hennar augum væri í raun búið að stéttaskipta byggðunum á landinu án þess að fólk vissi um hvað það væri að tala. Á Ólafsfirði væri mikið um að vera þar eru um 40 fyrirtæki, ýmiskonar uppbygging í gangi og öflugt félagslíf. Íbúar hefðu fundið leiðir til að mæta nýjum veruleika og breytingum á atvinnuháttum með elju og dugnaði. Þá var komið að afhendingu prófskírteina, sem Lára skólameistari og Jóna Vilhelmína aðstoðarskólameistari sáu um. Dúx skólans að þessu sinni var Urður Harðardóttir, úr Reykjanesbæ. Hún útskrifaðist af Félags- og hugvísindabraut og hlaut viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur í fjórum námsgreinum.   Að lokum var komið að ávarpi nýstúdents sem Helgi Þór Ívarsson, fjarnemi við skólann, flutti. Hann hóf mál sitt á að segja frá því að hann væri að stíga í fyrsta sinn inn í skólabygginguna og að flytja sína fyrstu ræðu. Hann sagði frá þeim áskorunum sem fylgja því að stunda fjarnám því það hefði verið erfiðara en hann bjóst við; að halda einbeitingu og sjálfsaga og vinna jafnt og þétt, það var ekkert auðvelt en með góðri aðstoð og hvatningu sinna nánustu og kennarana hafi það tekist. Eftir grunnskólagönguna hefur hann elt íshokkídraum sinn og hefur leikið þá íþrótt með liðum í Evrópu, hér heima og fyrir landslið Ísland. Fjarnámið hefur gert honum kleift að fylgja þessum draumi eftir, ferðast víða um heiminn til að keppa og mennta sig í leiðinni. Mælti hann með skólanum fyrir alla sem vildu upplifa ævintýri og mennta sig á sama tíma. Þakkaði hann sérstaklega Birgittu Sigurðardóttur, umsjónarkennara fjarnema, fyrir aðstoðina við að skipuleggja námið í kringum allt sem hann hefur áhuga á og benda honum á áfanga sem hann hélt að ekki væri möguleiki á að taka í menntaskóla eins og ýmiskonar íþrótta- og listaáfanga.     Við athöfnina söng Sigurlaug Sturludóttir, ung og efnileg söngkona úr Ólafsfirði, tvö lög við undirleik Ave Kara Sillaots.
  • Síðasti kennsludagur mynd ÞH
    15.05.2025

    Síðasti kennsludagur

    Það er bara svona; síðasti kennsludagur annarinnar í dag og nemendur ganga brosandi út í sumarið. Veðurblíðan hefur leikið við okkur að undanförnu svo síðustu kennsludagarnir voru litaðir mikill útiveru og fjöri. Blaknet var sett upp á lóð skólans og var það mikið notað, bæði af nemendum og kennurum og ýmsir spreyttu sig í frisbígolfi en aðstaða til að stunda þá skemmtilegu íþrótt var útbúin við skólann fyrir nokkrum árum. Einnig var skellt í hinn árlega Tarzan-leik í skólalok. Sumir létu þó góðviðrið ekki trufla sig við námið og stunduðu það af kappi hvort sem var innandyra sem utan. Sólin er þó ekki besti vinur tölvuskjánna og var ýmsum brögðum beitt til að geta stundað nám og yfirferð verkefna auk þess að njóta sólarinnar. Framundan er svo Vorsýning skólans, laugardaginn 17. maí, þar sem til sýnis er afrakstur vinnu annarinnar. Næsta vika er helguð námsmati hjá kennurum og föstudaginn 23. maí munu um 50 nemendur setja upp hvíta kollinn þegar útskrift fer fram á sal skólans.
  • Sigurður Mar blótar mynd GK
    14.05.2025

    Fjölþjóðlegt fjör og krydd í tilveruna

    Í síðustu viku voru nemendur og kennarar frá hinum danska Ungdomshøjskolen ved Ribe í heimsókn á Norðurlandi og glöddu m.a. okkur í Menntaskólanum á Tröllaskaga með nærveru sinni. Hópurinn, sem samanstóð af nemendum víða að úr heiminum, kom til landsins á mánudeginum og keyrði beint til Akureyrar þar sem var gist meðan á dvölinni stóð. Á þriðjudegi kom hópurinn í MTR og dagskráin hófst með því að nemendaráð sagði gestunum frá skólanum og skipulagi námsins og gestirnir kynntu í kjölfarið sinn skóla og tóku svo lagið. Þá tók við áhugaverð athöfn þar sem Sigurður Mar Svínfellingagoði, og kennari í MTR, hélt blót að heiðnum sið á túninu við skólann og bauð gestina velkomna. Að henni lokinni sýndu hinir erlendu gestir dans og fengu svo nemendur og kennara MTR með sér í fjörugan línudans áður en sest var að snæðingi. Eftir hádegið skoðaði hópurinn sig um á Ólafsfirði í blíðviðrinu og síðan var brunað á Mývatn til að upplifa þau náttúruundur sem þar eru. Á miðvikudeginum var haldið til Siglufjarðar þar sem var rölt um bæinn og veitinga notið í bakaríinu áður en haldið var í Ljóðasetur Íslands, sem annar kennari í MTR, Þórarinn Hannesson, veitir forstöðu. Þar fengu gestirnir fræðslu um íslenska ljóðlist, sérstaklega Eddukvæðin, sem og fornsögurnar og íslenskar þjóðsögur og tengsl Tolkiens og fleiri rithöfunda við þennan arf okkar. Fræðslan var krydduð með söng, gítarspili og kveðskap og í lok heimsóknar stigu tveir nemendur á stokk og fluttu frumsamin ljóð. Seinni part dagsins var komið saman í hinni nýju menningarmiðstöð Brimsölum í Ólafsfirði, sem enn einn kennarinn úr MTR, Ida Semey, rekur. Þar voru sagðar sögur, flutt tónlist og rætt um heima og geima áður en haldið var til Akureyrar í háttinn. Á fimmtudagsmorgni var enn komið í Ólafsfjörð og nú var farið í fjöruhreinsun og svo búin til listaverk úr einhverju af því sem fannst í fjörunni. Eftir hádegið var úrvinnsla ferðarinnar sett í myndbandsbúning og svo skellti hópurinn sér í sund á Ólafsfirði áður en lagt var í hann til Keflavíkur. Flaug hópurinn utan á föstudagsmorgni eftir viðburðaríka daga á Íslandi. Við þökkum þeim fyrir samveruna og kryddið í tilveruna hjá okkur.
Sjá meira

Flýtileiðir

  • Áætlun gegn ofbeldi
  • MTR og heimsmarkmiðin
  • Myndir
  • Náms og starfsráðgjöf
  • Óveðursdagar
  • Skóladagatal
  • Skólareglur
  • Vorsýning 2025
  • Starfsfólk
  • Tilkynning um grun um einelti/ áreitni/ofbeldi
  • Viðtalstímar

Skrifstofa

Skrifstofa skólans er opin mánudag til fimmtudags frá 8:00 til 16:00 og föstudag frá 8:00 til 12:00.

Menntaskólinn á Tröllaskaga

Allar veðurstöðvar

Siglufjörður:
7.4 5 m/s
Ólafsfjörður:
9.1 6 m/s
Dalvík:
8.1 4 m/s

Menntaskólinn á Tröllaskaga

Ægisgötu 13
625 Ólafsfirði
Kt. 690310-0820
Sími: 4604240
Netfang: mtr@mtr.is

 

Græn skref    Grænt bókhald

Erasmus Grænfáni

Menntaverðlaun      Jafnlaunavotttun

Unesco      

  2016  Stofnun ársins 2016  2017

      Stofnun ársins 

   

Venjulegt útlit Breyta stillingum