Fréttir

Nýnemadagur í blíðskaparveðri

Nýnemar voru boðin velkomin í dag en í MTR er ekki busavígsla heldur nýnemadagur sem einkennist af samveru og fjöri. Veðrið lék við nemendur í dag og dagskráin var hefðbundin. Fyrir hádegið var sápuboltamót og í hádeginu var grillveisla. Að því loknu fjölmenntu nemendur í sund.
Lesa meira

Fyrsti kennsludagur

Fyrsti kennsludagur annarinnar var í dag og mættu nemendur í fyrsta sinn eftir sumarleyfi. Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir aðstoðarskólameistari bauð nemendur velkomin og miðlaði nauðsynlegum upplýsingum til nýnema og rifjaði upp fyrir þeim sem eldri eru.
Lesa meira

Skapandi námskeið í skólanum

Kennarar, stuðningsfulltrúi og þroskaþjálfi skólans eru nú á tveggja daga námskeiði hjá dananum Søren Hansen frá háskólanum í Álaborg. Hann er sérfræðingur í skapandi hugsun og hvernig hægt er að þjálfa nemendur í skapandi vinnubrögðum.
Lesa meira

Opnað eftir sumarleyfi

Nú er allt komið í fullan gang í skólanum eftir sumarleyfi. Kennarar eru við undirbúning náms en starfsfólk skrifstofu og stjórnendur eru mætt í hús til að vinna að sínum undirbúningi. Við hlökkum til vetrarins, margt spennandi framundan, margir erlendir gestir koma ásamt því að nemendur og kennarar verða á faraldsfæti.
Lesa meira

Sumarleyfi - innritun í fjarnám lokið

Sumarleyfi á skrifstofu skólans er frá 17. júní til 2. ágúst. Innritun í fjarnám er lokið fyrir haustönn og næst fer innritun fram fyrir vorönn 2023 og hefst hún í byrjun nóvember. Þökkum öllum fyrir frábært samstarf á skólaárinu og hlökkum til að hitta alla í haust.
Lesa meira

Endurnærandi endurmenntun

Sextán kennarar og þroskaþjálfi skólans er nú á endurmenntunarnámskeiði í Puerto de la Cruz á norðurströnd Tenerife. Megin viðfangsefni námskeiðsins er streita, að læra að þekkja streituvalda og að tileinka sér aðferðir til að vinna bug á þeim sem svo aftur minnkar hættuna á kulnun í starfi.
Lesa meira

Skóli á grænni grein

MTR fékk nýverið afhentan sinn annan grænfána en skólinn hefur verið grænfánaskóli síðan í september 2020. Grænfánaverkefnið alþjóðlegt umhverfismenntarverkefni sem á Íslandi er rekið af Landvernd. Það snýst um að auka umhverfisvitund með menntun og verkefnum innan kennslustofu og utan.
Lesa meira

Létt yfir nýstúdentum

Í dag brautskráðust 37 nemendur frá Menntaskólanum á Tröllaskaga. Þar af eru tólf búsettir í Fjallabyggð en í meirihluta eru fjarnemar frá þrettán stöðum á landinu, einn býr í Frakklandi og annar í Danmörku. Þetta var 24. brautskráning skólans og alls hafa 464 nemendur lokið námi með formlegum hætti frá skólanum.
Lesa meira

Námskeið í tölvuleikjum og sýndarveruleika

Á föstudaginn var mættu allir kennarar skólans á námskeið í notkun sýndarveruleika og tölvuleikja í skólastarfi. Að auki var kennurum frá VMA, FSH og Grunnskóla Fjallabyggðar boðið að vera með svo það var mikil líf í húsinu þennan föstudag.
Lesa meira

Vorsýning í dag

Í dag opnar sýning á verkum nemenda i skólanum. Málverk og skulptúrar eru á veggjum skólahússins en stór hluti verkanna eru sýnd rafrænt. Þar eru t.d. lokaverkefni í ljósmyndun, tölvuleikjahönnun, frumkvöðlafræði, inngangi að listum og reyndar flestum áföngum sem kenndir voru á vorönninni.
Lesa meira