Almennt
20.02.2013
Fræðslufundur Aflsins verður haldinn í fundatímanum í dag. Þetta er fyrirlesturinn sem átti að vera á miðvikudaginn fyrir viku en féll þá niður af óviðráðanlegum orsökum. Aflið eru samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi sem Nemendafélagið Trölli hefur fengið til að fræða nemendur um þessi mál. Fyrirlesturinn verður í Bókasafninu kl. 11-12. Nemendaráð hvetur nemendur til að mæta.
Lesa meira
Almennt
20.02.2013
Kristín Tómasdóttir fjallaði um sjálfsmynd stelpna og ungra kvenna í fyrirlsestri í skólanum í gær.
Hún lagði sérstaka áherslu á hvernig þær geti markvisst eflt sjálfsmynd sína og áhrif mismunandi hlutverka á sjálfsmyndina. Allmargar stúlkur sóttu fyrirlesturinn og kom þeim á óvart hvað það er margt sem hefur áhrif á sjálfsmyndina.
Lesa meira
Almennt
19.02.2013
Það lærðu nemendur í Tröllaskagaáfanga í gær hjá Selmu Dögg Sigurjónsdóttur á Nýsköpunarmiðstöð.
Hægt er að líta á viðskiptaáætlun sem sögu þar sem varan okkar eða þjónustan er aðalpersóna. Söguþráðurinn er svo hvernig hugmynd verður að veruleika, hvað á að framleiða eða selja, hvað þarf til, hvar á starfið að fara fram, hverjir eru mögulegir kaupendur og hvernig ætlum við að ná til þeirra.
Lesa meira
Almennt
17.02.2013
Glæsileg söngkeppni skólans var haldin í kvöld og sigraði Lilja Björk með stórkostlegum flutningi á laginu Take me or Leave me úr Rent. Í öðru sæti var Svavar Þór sem flutti eigið lag og sögðust margir áheyrendur hafa fengið gæsahúð svo vel var að verki staðið. Í þriðja sæti var Kristlaug Inga með lagið Stay með Miley Cirus.
Lesa meira
Almennt
15.02.2013
Nemendur í líffræði skoðuðu líffæri úr svínum í vikunni. Þar á meðal hjarta, lungu, lifur, vélinda, barka og þind. Lungun voru skoðuð rækilega og blásin út. Einnig voru hjörtun skorin og skoðuð hvolf, gáttir, lokur og helstu æðar. Nemendur reyndu að átta sig á leið blóðsins um hjartað.
Lesa meira
Almennt
14.02.2013
Skemmtilegur fyrirlestur um sjálfsmynd stelpna og ungra kvenna verður haldinn hér í Menntaskólanum á morgun, þriðjudag, klukkan 15:30. Fyrirlesturinn verður á Bókasafninu (í syðstu). Allar stelpur eru hvattar til að mæta.
Lesa meira
Almennt
14.02.2013
Nemendur sem eru undir 18 ára aldri eru minntir á að þeir þurfa að skila inn undirrituðu leyfi frá foreldrum áður en þeir leggja af stað til Lauga. Við óskum okkar keppendum góðs gengis og hlökkum til að sjá þessa flottu og spennandi keppni.
Lesa meira
Almennt
14.02.2013
Þegar fiskvinnsla Íslendinga fluttist að verulegu leyti út á sjó urðu úrfellingar og ryð alvarlegt vandamál. Þetta olli bæði lélegri nýtingu og auknum viðhaldskostnaði. Ólöf Ýr Lárusdóttir, framkvæmdastjóri Vélfags í Ólafsfirði, sagði nemendum í Tröllaskagaáfanga frá því fyrr í vikunni hvernig fyrirtækið hefði reynt að leysa þessi vandamál.
Lesa meira
Almennt
13.02.2013
Kennarar og nemendur í Menntaskólanum halda upp á daginn með ýmsu móti. Sumir mættu í skrautklæðum í morgun. Hljóðkerfi er uppsett í anddyri skólans og hægt að taka þar lagið svo hljómi um skólann. Nemendur hafa í morgun meðal annars sungið um krumma í klettagjá og gamla Nóa. Gestir eru hjartanlega velkomnir og verða leystir út með góðgæti.
Lesa meira
Almennt
12.02.2013
Skráning hefst miðvikudaginn 13.02.2013 kl. 10:55
Kúrsar í boði
Lesa meira