Sýning á verkum nemenda

Laugardaginn 10. desember verður opnuð sýning á verkum nemenda MTR. Þar er sýndur afrakstur vinnu nemenda frá haustönninni undir kjörorðunum frumkvæði, sköpun og áræði. Sýningin verður í skólahúsinu frá kl. 13-16 en einnig á netinu.

Í skólahúsinu eru sýnd málverk og önnur verkefni staðnema skólans en á netinu eru nokkrir sýndarveruleikasalir með verkum nemenda og einnig hægt að sjá fjölmörg myndbandsverk og fleiri verkefni sem unnin eru til birtingar á internetinu.

Sú leið að sýna hluta verkanna á netinu komst á í heimsfaraldrinum þegar samfélagið var lamað að miklu leyti. Þessa aðferð notum við áfram enda sparar það að senda verk landshorna á milli og jafnvel erlendis frá. Ljósmyndanemar spara einnig kostnað við prentun verka sinna og þannig er kolefnisspor þessa viðburðar eins lítið og hugsast getur. MTR er Grænfánaskóli og leggur áherslu á heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og sýning á netinu smellpassar inn í þær áherslur.

Smellið hér til að skoða sýninguna á netinu og verið velkomin í skólann okkar á laugardag frá kl. 13 til 16.