Ánægjuleg árshátíð

Í síðustu viku fór árshátíð nemendafélagsins Trölla fram og var þema kvöldsins Hollywood. Nemendur og kennarar komu saman á sal skólans, nutu góðra veitinga og skemmtu sér vel. Nemendaráð sá að venju um allan undirbúning, skipulag og framkvæmd, er heilmikill lærdómur og gagnleg reynsla að taka þátt í slíku. Boðið var upp á fjölbreyttar veitingar s.s. sushi, pizzur og kebab og síðan ís og súkkulaðiköku í eftirmat. Allt smakkaðist þetta ljómandi vel og rann ljúft niður. Var útfærsla nemendaráðs á framreiðslunni snjöll og lágmarkaði allt umstang í eldhúsi án þess að slegið væri af kröfunum um gæði. Þegar gestir höfðu náð áttum eftir kræsingarnar voru heilasellurnar virkjaðar í spurningakeppnum. Fyrst var Kahoot-keppni þar sem þemað var tölvuleikir. Magni Gunnarsson nemandi skólans, undirbjó og stýrði henni að venju. Þar reyndist yngri kynslóðin mun betur að sér en þeir eldri. Síðan var keppt í blönduðum liðum nemenda og kennara og reyndi þar á samvinnu kynslóðanna. Í lokin voru afhent verðlaun eftir spennandi keppni. Ýmislegt fleira var til gamans gert þessa ánægjulegu stund og vinsælt var að stilla sér upp fyrir framan myndavélina í góðra vina hópi. Myndir