Myndlist og menning
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Áfanginn felst í heimsókn nemenda úr Menntaskólanum á Tröllaskaga til Gautaborgar í Svíþjóð þar sem áherslan er á myndlist og menningu í Svíþjóð. Nemendur fá tækifæri til að kynnast ólíkum myndlistarstílum, hefðum, söfnum, galleríum, myndlistarskólum og vinnustofum listamanna í Gautaborg. Með því að skoða myndlist, söfn og myndlistarskóla í öðrum löndum auka nemendur víðsýni og auka þekkingu sína á ólíkum stefnum og stílum í myndlist. Áhersla er lögð á að nemendur auki orðaforða sinn á sviði menningar og lista og geti tjáð skoðanir sínar og rökstutt.
Þekkingarviðmið
- vinnuumhverfi, vinnutækjum og áhöldum viðkomandi listgreinar
- listum í menningarlegu og sögulegu samhengi
- mismunandi nálgun listamanna við listsköpun
- helstu listamönnum Gautaborgar og helstu listastefnum
- miðlun listsköpunar með því að tjá sig um hana
- því að þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
Leikniviðmið
- taka virkan þátt í umræðum við jafningja í öðrum löndum
- skoða listaverk og fjalla um megininntak þeirra á skapandi hátt
- efla skilning sinn á listrænni vinnu, upplifa, skynja og túlka það sem nemandi sér
- taka þátt í samræðum um listgreinarnar, færa rök fyrir máli sínu og virða skoðanir annarra
- skoða hvar list er í umhverfinu og fjalla um það
- skiptast á skoðunum og setja fram hugmyndir sínar og bregðast við viðmælendum og vinna saman í hópum að framsetningu á því sem lært var í heimsókninni
Hæfnisviðmið
- tjá skoðanir sínar og tilfinningar um list, listamenn og listviðburði
- horfa á myndlist með opnum hug og efla með sér félagslega ábyrgð, virðingu og vilja til samvinnu á alþjóðavettvangi
- vera meðvitaður um menningarlegt hlutverk listsköpunar
- þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is