Kynheilbrigði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Meginmarkmið áfangans er að auka grundvallarþekkingu nemenda á fjölbreytileika mannlífsins, áhrif líðanar á andlega heilsu og kynvitund, kynferðislegri hegðun og kynfræðslu. Unnið er að því að rfja upp og byggja ofan á þá kunnáttu og færni sem nemendur hafa þegar og unnið út frá áhuga hvers og eins. Námsefni er útbúið með það í huga að það styrki nemendur og hvetji til sjálfstæðra vinnubragða
Þekkingarviðmið
- algengum orðum og orðasamböndum tengt hinsegin samfélaginu, andlegri líðan, núvitund og kynjafræði
- fjölbreytileika mannlífsins, menningarmun og samskiptum. Áhrif virkni og líðanar á andlega heilsu
Leikniviðmið
- taka þátt í umræðum um líðan, kynheilbrigði og virkni í athöfnum daglegs lífs
- leita sér upplýsinga á netinu um málefni og geta unnið úr þeim texta
- nýta fjölbreytilega miðla til að auka þekkingu sína á viðfangsefnum eins og t.d. youtube, ted talks, instagram og netinu
- nota upplýsingatækni og hjálpargögn við úrvinnslu verkefna
Hæfnisviðmið
- fylgjast með frásögnum og erindum og ná aðalatriðum úr fjöl- og myndmiðlum ef efnið er kunnuglegt
- tileinka sér aðalatriði og geta dregið ályktanir af því sem hann les
- miðla eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu, vonum og væntingum
- skrifa um hugðarefni sín og áhugamál, ígrundað efnið út frá þeim
Nánari upplýsingar á námskrá.is