Breskur húmor
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: 10 einingar í ensku á 2. þrepi
Nemendur öðlast þekkingu á ýmsu sem tengist breskum húmor, s.s., einkennum, bakgrunni, menningu og tilvísunum í sögu (sögulega atburði). Tungumál þeirra verka sem skoðuð eru er krufið til mergjar. Nemendur kynnast einnig mismunandi tegundum húmors, ákveðnum höfundum og verkum þeirra. Áhersla er lögð á sjálfstæða vinnu og verkefni og að nemendur leiti sér sjálfir fanga. Nemendur vinna að fjölbreyttum verkefnum sem miða að því að þjálfa framsögn, samræður, samvinnu, hlustun, gagnrýna hugsun, málsskilning og ritfærni.
Þekkingarviðmið
- helstu einkennum bresks húmors
- nýjum orðaforða sem tekinn var fyrir í áfanganum
- menningarumhverfi þess efnis sem skoðað er
- gagnrýnu áhorfi, tengingu og tilvísunum þess efnis sem er til umfjöllunar
- samspili menningar og tungumáls sem kristallast í þeim verkum sem skoðuð eru
Leikniviðmið
- hugsa á skapandi og gagnrýninn hátt
- taka afstöðu til hugmynda og rökstyðja mál sitt
- setja mál sitt fram skilmerkilega í ræðu og riti
Hæfnisviðmið
- vinna sjálfstætt og skipuleggja verkefni
- skoða verk og geta tjáð sig munnlega og skriflega um efni þeirra með viðeigandi orðaforða
- taka þátt í skoðanaskiptum og færa rök fyrir máli sínu
- nýta og beita nýjum orðaforða
- skrifa bæði skapandi og formlegan texta og beita viðeigandi rithefðum
- gera greinarmun á formlegri og óformlegri málnotkun í ræðu og riti
Nánari upplýsingar á námskrá.is