stjórnmálafræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: INNF1IF05
Í áfanganum er stjórnmálafræði kynnt sem fræðigrein og rætt um helstu hugmyndafræðistrauma stjórnmálanna. Þá er stjórnmálasagan rakin frá 1904 til nútímans, þróun íslenskra stjórnmálaflokka og fjallað um hugmyndafræði þeirra í alþjóðlegu samhengi. Íslenska valdakerfið er skoðað, þrískipting ríkisvaldsins og samspil helstu valdaþátta. Markmiðið er að nemendur þekki í grófum dráttum einkenni íslenska stjórnkerfisins og flokkanna, skilji hvernig valdaþættir spila saman og viti hvar helstu átakalínur liggja. Áhersla er lögð á að fjalla um málefni sem eru efst á baugi í stjórnmálum, efnahagsmálum og félagsmálum og efni sem nemendur hafa sérstakan áhuga á.
Þekkingarviðmið
- helstu viðfangsefnum, aðferðum og hugtökum stjórnmálafræðinnar
- hugmyndafræði, stefnu og viðhorfum í stjórnmálum
- þrískiptingu ríkisvaldsins og helstu stoðum íslenska stjórnkerfisins
- þróun íslenska valdakerfisins, stjórnmálaflokka og helstu hagsmunasamtaka
Leikniviðmið
- afla sér traustra upplýsinga um stjórnmálaleg efni
- greina upplýsingarnar og setja í fræðilegt samhengi
- beita hugtökum stjórnmálafræðinnar á dagleg pólitísk úrlausnarefni
- tengja sögu íslensku flokkanna við helstu hugmyndakerfi í stjórnmálum
Hæfnisviðmið
- skilja pólitískt samhengi í samfélaginu
- þekkja birtingarform einstakra stjórnmálastefna í samfélagslegum ákvörðunum
- rökræða pólitísk og samfélagsleg álitaefni á málefnalegan og gagnrýninn hátt
- taka virkan þátt í lýðræðislegu samfélagi
Nánari upplýsingar á námskrá.is