Hlaðvarp og hlustun
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: INNF1IF05
Í áfanganum hlustar nemandinn á fjölbreytt hlaðvörp (podköst) til að öðlast innsýn, þekkingu og skilning á hinum ýmsu málefnum og fræðasviðum. Miðað er við að hlusta á einn til tvo hlaðvarpsþætti í viku hverri, auk þess að skila inn vikulegum verkefnum sem tengjast efni hvers hlaðvarps. Í verkefnunum er m.a. lögð áhersla á ígrundun, sýn og nálgun samfélagsins, rökstuðning skoðana sinna og að sýna málefnum virðingu. Áhersla er lögð á fjölbreytt val hlaðvarpa sem verða bæði á íslensku og ensku og að nemendur kynnist bæði formi og innihaldi sem og mismunandi nálgun höfunda og viðmælenda. Málefni geta verið allt frá vísindum og sagnfræði til menningar, sálfræði, skapandi skrifa og andlegra málefna.
Þekkingarviðmið
- mismunandi gerðum hlaðvarpa og frásagnarformi þeirra
- hlaðvörpum sem miðli fræðslu, umræðu og afþreyingar
- hvernig ólík sjónarhorn og nálganir móta skilning á efni
Leikniviðmið
- hlusta á hlaðvörp með gagnrýnum og opnum huga
- draga fram aðalatriði, lykilhugtök og helstu rök sem fram koma
- greina mismunandi stíl og nálgun hlaðvarpa (t.d. fræðilegir, skemmtilegir, persónulegir, blandaðir)
Hæfnisviðmið
- fjalla um hlaðvörp á gagnrýninn og uppbyggilegan hátt
- tjá rökstudda afstöðu og taka þátt í málefnalegri umræðu um efnið
- nota hugtök og orðaforða sem tengjast miðlum og umræðuformum hlaðvarpa í ræðu og riti
Nánari upplýsingar á námskrá.is