ENSK3GL05 - Enska, glæpasögur

glæpasögur

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: 10. einingar í ensku á 2. þrepi
Í áfanganum kynnast nemendur sögu og þróun glæpasagnaritunar. Nemendur kynnast nokkrum enskumælandi glæpasagnahöfundum, lesa og meta verk þeirra, auk þess að kynna sér aðra þekkta höfunda og þýddar glæpasögur á ensku. Í áfanganum eru skoðuð helstu einkenni glæpasagna og rýnt í þekktustu verk frá Bretlandi og Bandaríkjunum.

Þekkingarviðmið

  • á formi og einkennum bókmenntategundarinnar
  • sögu og þróun glæpasagnaritunar, stöðu hennar innan bókmenntanna og tengslum við aðra miðla, t.d. bíómyndir og sjónvarp
  • verkum nokkurra erlendra glæpasagnahöfunda
  • áhrifum glæpasögunnar á nútímasamfélag (hvernig vinsældir glæpasagna hafa teygt sig á önnur svið)

Leikniviðmið

  • beita helstu hugtökum bókmenntafræðinnar í umfjöllun um form og einkenni glæpasögunnar
  • lesa og fjalla um glæpasögur á gagnrýninn og fræðilegan hátt
  • flytja af öryggi vel byggða kynningu á bókmenntalegu viðfangsefni
  • vinna að skapandi verkefnum þar sem lögmálum glæpasögunnar er beitt

Hæfnisviðmið

  • dýpka lesskilning sinn
  • auka og bæta við orðaforða og málskilning
  • átta sig á samfélagslegri skírskotun og ná duldum boðskap og hugmyndum
  • tjá rökstudda afstöðu og taka þátt í málefnalegri umræðu um bókmenntir
  • sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan í málflutningi sínum, umfjöllun og verkum
Nánari upplýsingar á námskrá.is