LÝÐH1HM02 - Heilsa og markþjálfun

Heilsa og markþjálfun

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Markmið áfangans er að efla og styrkja vitund þátttakenda á heilsusamlegu líferni, andlegu, líkamlegu, og félagslegu. Og gera sér grein fyrir eigin ábyrgð á heilsusamlegu líferni. Áfanganum er skipt í fyrirlestra og verklegar æfingar, farið verður í líkamsrækt, heilsuvernd, mataræði, jóga og þannig stuðlað að því að nemendur verði meðvitaðir um helstu áhrifavalda sem snerta heilsusamlegt líferni, hvað hefur áhrif á þá andlega, líkamlega og félagslega. Nemandinn öðlast færni og þekkingu á samskiptum, framkomu, deilum, slökun, sjálfsaga og ýmsu fleiru. Nemendur skoða hæfileika, veikleika, og styrkleika sína og læra nýta sér þá.

Þekkingarviðmið

  • heilsusamlegu líferni og vellíðan
  • á því hvað forvarnir og heilsuvernd eru mikilvægir þættir í heilsusamlegu líferni
  • eigin styrkleikum og veikleikum
  • fordómum og mögulegum ástæðum þeirra
  • eigin fordómum og leiðum til að takast á við þá
  • menningu og menningarmun milli þjóða og þjóðfélagshópa
  • mannréttindum
  • sjálfsmynd og sjálfstrausti
  • álagi, streitu og kvíða
  • samskiptum bæði góðum og slæmum

Leikniviðmið

  • stunda heilsusamlegt líferni
  • gera sér grein fyrir helstu áhrifavöldum á andlegt, líkamlegt og félagslegt líferni hans
  • bera kennsl á neikvæða áhrifavalda og bregðast við þeim
  • greina eigin styrkleika og veikleika
  • gera sér grein fyrir eigin fordómum
  • efla sjálfsmynd sína og annarra
  • gera sér grein fyrir neikvæðum áhrifum af streitu, álagi og kvíða

Hæfnisviðmið

  • hugsa lausnamiðað um eigin heilsu
  • gera áætlanir um heilsusamlegt líferni sem henta honum
  • ráðast í verkefni þar sem árangur er óviss
  • greina eigin styrkleika og veikleika
  • takast á við eigin fordóma
Nánari upplýsingar á námskrá.is