FÉLA2SG05 - Samfélagsáhrif gervigreindar

samfélagsáhrif gervigreindar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur skoði gervigreind markvisst, með tilliti til möguleika og gagnsemi hennar í samfélaginu, til dæmis í námi og atvinnulífi. Farið er yfir styrkleika og veikleika gervigreindar. Einnig er farið yfir siðferðileg álitamál sem tengjast þessu. Lögð er áhersla á að nemendur temji sér gagnrýna hugsun, öguð vinnubrögð, siðferðileg viðmið, sjálfstæði og frumkvæði.

Þekkingarviðmið

  • stöðu gervigreindarinnar
  • notkunarsviðum gervigreindar
  • möguleikum gervigreindar
  • veikleikum gervigreindar
  • ógnunum sem geta stafað af notkun gervigreindar

Leikniviðmið

  • vinna með samskipti við gervigreind
  • greina áreiðanleika upplýsinga
  • koma auga á möguleika á notkun gervigreindar
  • vinna sjálfstætt

Hæfnisviðmið

  • meta áreiðanleika upplýsinga
  • greina tækifæri til notkunar
  • geta notað gervigreind á ábyrgan, öruggan og uppbyggjandi hátt
  • vera betur undirbúinn fyrir áframhaldandi nám
  • greina áhrif gervigreindar á líf og starf í lýðræðislegu samfélagi
Nánari upplýsingar á námskrá.is