IÐJU1IÞ05 - Inngangur að iðjuþjálfun

Inngangur að iðjuþjálfun

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum er sjónum beint að faggreininni iðjuþjálfun. Nemendur fá kynningu á viðfangsefnum iðjuþjálfa sem eru afar fjölbreytt. Iðjuþjálfun hefur það að markmiði að efla iðju, þátttöku, heilsu og velferð einstaklinga, hópa og samfélaga. Kynnt verður starf iðjuþjálfa sem starfa t.d. við vinnuvernd, endurhæfingu, inni í menntakerfinu og við forvarnir. Kynnt verður iðja, umhverfi, samspil þess og áhrifaþættir. Nemandinn er studdur til þess að þreifa sig áfram á eigin forsendum, vinna með öðrum og fjalla um efnið út frá eigin forsendum og ná lengra, byggt á fyrri þekkingu og reynslu. Lögð er áhersla á að nemendur temji sér sjálfstæði í vinnubrögðum.

Þekkingarviðmið

  • viðfangsefnum iðjuþjálfunar
  • grunnhugtökum iðjuþjálfunar
  • þeim störfum sem iðjuþjálfar sinna

Leikniviðmið

  • beita algengustu hugtökum um viðfangsefni áfangans á skýran og skilmerkilegan hátt
  • lesa og skilja umfjöllun um helstu viðfangsefni áfangans
  • tjá kunnáttu sína bæði munnlega og skriflega

Hæfnisviðmið

  • tjá sig skipulega og gagnrýnið um einstaka efnisþætti
  • mynda sér skoðanir sem byggjast á gagnrýnni hugsun
  • afla sér upplýsinga, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér þær
  • beita öguðum vinnubrögðum, taka ábyrgð á eigin námi og vinna í samvinnu við aðra
  • hagnýta netið til að afla sér þekkingar um viðfangsefni áfangans
  • setja sig í spor annarra
Nánari upplýsingar á námskrá.is