Söngleikir
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Áfanginn miðar að því að gefa nemendum yfirlit og betri þekkingu á söngleikjum. Farið verður meðal annars í hugtakið söngleikur, sögu, fjölbreytileika, þróun og flytjendur. Horft/hlustað verður á úrval af söngleikjum og nemendum gefinn kostur á að skila skapandi verkefnum.
Þekkingarviðmið
- Hugtakinu söngleikur
- Grunni sögu söngleikja á Íslandi og erlendis
- Mismunandi stíl og þróun söngleikja
- Flytjendum og öðrum sem að koma að uppsetningu sýninga
Leikniviðmið
- Hlusta og horfa á söngleiki með skilningi á mismunandi stíl
- Búa til og skila skapandi verkefnum byggðum á námsefni
- Geta nýtt sér fjölbreytta miðla til þess að nálgast efni og upplýsingar
Hæfnisviðmið
- Afla sér upplýsinga og þekkingar á mismunandi stíl flytjenda söngleikja og öðru námsefni
- Búa til og skila skapandi verkefnum byggðum á námsefni
- Tjá sig og taka þátt í samræðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is