ÍSAN2DT05 - Íslenska sem annað mál, dagleg umræða og talað mál

Dagleg umræða og talað mál

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: 15 einingar í ÍSAN.
Í áfanganum lesa nemendur og hlusta á margvíslega texta, auk þess að horfa á myndbönd og leysa verkefni tengd þeim. Þeir hlusta m.a. á og lesa texta um íslenskt samfélag, svo og texta um almenningsvísindi. Mikil áhersla er á talað mál og að auka sjálfstraust nemenda í munnlegum samskipum. Lögð er áhersla á að nemendur séu virkir í að velja sér umfjöllunarefni og beri þannig aukna ábyrgð á tileinkun tungumálsins. Tilteknir textar eru lesnir ítarlega og aðrir yfirborðslega, því hvort tveggja er nauðsynlegt að kunna þegar nýtt tungumál er lært.

Þekkingarviðmið

  • orðaforða sem tengist daglegu lífi á Íslandi
  • orðaforða sem tengist ólíkum þáttum íslensks samfélags
  • mæltu máli á íslensku á þeim hraða sem tíðkast meðal Íslendinga
  • yfirborðslestri almannavísindatexta
  • áhorfi og hlustun á efni um íslenskt samfélag

Leikniviðmið

  • lesa og hlusta á íslenska texta um daglegt líf á Íslandi
  • lesa og hlusta á texta um íslenskt samfélag
  • færa rök fyrir máli sínu
  • esa og hlusta á almannavísindatexta
  • hlusta og/eða horfa á útvarps- og/eða sjónvarpsefni

Hæfnisviðmið

  • svara spurningum, munnlega og skriflega, úr ítarlega lesnum textum
  • greina frá meginefni allflókinna texta (yfirborðslestur)
  • skrifa stuttar ritgerðir um innihald íslenskra sjónvarpsþátta
  • gera grein fyrir ýmsum þáttum íslensks samfélags sem kynntir eru í textanum
  • taka þátt í samtölum við innfædda málnotendur um hin ýmsu málefni
  • geta haldið kynningar á íslensku þar sem sagt er frá eigin verkefnum eða reynslu
  • leggja stund á nám ætlað íslenskum nemendum á framhaldsskólastigi
Nánari upplýsingar á námskrá.is