LEIK2SÖ05 - Söngleikir

Söngleikir

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: INNL1IL05
Fjallað er um söngleiki í víðum skilningi. Megin áhersla er lögð á þátttöku nemenda í uppsetningu söngleikjar. Nemendur kynnast öllu ferlinu við undirbúning sýningar, taka að sér hlutverk eða vinna við aðra þætti, s.s. tónlistarvinnu eða útlitshönnun sýningar. Nemandinn fær markvissa þjálfun og tilsögn í ferlinu. Æfingatímabil verður 6-8 vikur og sýningar í kjölfar þess. Farið er fram á sjálfstæð, skapandi og vönduð vinnubrögð.

Þekkingarviðmið

  • mismunandi störfum innan leikhússins
  • því verkferli sem viðkomandi er hluti af í sýningunni
  • því sem þarf til að söngleikur verði frambærilegur
  • mikilvægi jákvæðra samskipta
  • menningarlegu hlutverki sviðslista
  • framkomu
  • tónheyrn

Leikniviðmið

  • leita lausna og sýna frumkvæði
  • vinna náið með öðrum á uppbyggilegan hátt
  • finna til ábyrgðar á viðfangsefnum
  • nýta þau verkfæri sem nauðsynleg eru
  • tjá sig fyrir framan hóp
  • að standa á sviði í hópi
  • segja skoðanir sínar á hreinskiptinn hátt
  • beita virkri hlustun
  • taka við fyrirmælum og fara eftir þeim

Hæfnisviðmið

  • axla ábyrgð á því hlutverki sem hann hefur tekið að sér
  • sýna sjálfsaga og vönduð vinnubrögð
  • vinna með öðrum á jákvæðan og skapandi hátt
  • geta sett sig í spor annarra
  • rökræða og komast að niðurstöðu
Nánari upplýsingar á námskrá.is